spot_img
HomeFréttirÍR tveimur stigum frá heimaleikjarétt eftir sigur í Þorlákshöfn

ÍR tveimur stigum frá heimaleikjarétt eftir sigur í Þorlákshöfn

Tuttugasta umferð Dominos deildar karla hófst í kvöld með fjórum leikjum. Í Grindavík hefndi Stjarnan fyrir bikartapið fyrr í vetur á öruggan hátt.

 

KR vann Keflavík í DHL höllinni en KR var yfir nánast allan leikinn en Keflavík tókst að þjarma nokkuð að íslandsmeisturunum á lokasprettinum. ÍR  sótti rándýran sigur til Þorlákshafnar og komst þar með upp fyrir Þór á töflunni. 

 

Tindastóll vann svo Skallagrím í Borgarnesi þar sem heimamenn voru með yfirhöndina framan af leik en frábær endasprettur þar sem Pétur Rúnar setti ískaldan þrist í lokin til að slökkva á Skallagrím og nánast kláraði leikinn. 

 

Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla þar sem Fjölnir, Breiðablik og Valur unnu góða sigra. 

 

Staðan í Dominos deild karla eftir leiki kvöldsins

 

Úrslit kvöldsins: 

 

Dominos deild karla.

KR 82-79 Keflavík

Skallagrímur 88-81 Tindastóll

Grindavík 77-96 Stjarnan

Þór Þ 71-74 ÍR

 

1. deild karla.

ÍA 70-98 Valur 

FSu 80-90 Fjölnir 

Hamar 78-100 Breiðablik

Fréttir
- Auglýsing -