ÍR kvittaði fyrir slakan leik í Keflavík og jafnaði einvígið 1-1 með 106-89 sigri í Hellinum í kvöld en sigurinn var sá sjötti í röð í Hellinum. Keflvíkingar gerðu nokkrar sterkar tilraunir til þess að skjótast fram úr en ÍR kláraði leikinn af harðfylgi og tryggði sér oddaleik á miðvikudag. Kelly Beidler fór mikinn hjá ÍR í kvöld með 27 stig og 12 fráköst en Sigurður Gunnar Þorsteinsson var fremstur á meðal jafningja hjá Keflavík með 27 stig og 10 fráköst.
Breiðhyltingar voru í banastuði í upphafi leiks, með fimm stigum í röð frá Nemanja Sovic komst ÍR í 9-0 en þá tók Guðjón Skúlason leikhlé fyrir Keflvíkinga og strax að því loknu náði Hörður Axel Vilhjálmsson að koma Keflvíkingum á blað, 9-2. Heimamenn vildu ekki sjá að Keflavík hefði sig eitthvað í frammi á upphafsmínútunum og tóku því annað 9-0 áhlaup og komust í 18-2, lygilegar upphafstölur í Hellinum.
Einstefnan hélst út leikhlutann þar sem Nemanja Sovic og Sveinbjörn Claessen skoruðu báðir 9 stig hjá ÍR í fyrsta leikhluta sem leiddu 31-13 að honum loknum. Halldór Örn Halldórsson setti niður þrist fyrir Keflvíkinga þegar fimm sekúndur voru eftir og sá þristur smitaði vel inn í annan leikhluta.
Alger kúvending varð á leiknum í öðrum leikhluta, með þristinum frá Halldóri úr fyrsta leikhluta fóru Keflvíkingar á 8-0 skrið og skömmu síðar var munurinn kominn í 10 stig, 31-21. Smátt og smátt fóru gestirnir úr Keflavík á nýjan leik að líkjast sjálfum sér þrátt fyrir að hafa ekki verið nægilega duglegir að sækja á körfu ÍR og oft sætta sig við léleg þriggja stiga skot gegn vörn heimamanna.
Gestirnir vippuðu sér fljótt í svæðisvörn og hún hrökk í gang, ÍR hætti að hitta og létu lítið reyna á svæði Keflavíkur í teignum og gestirnir færðust nærri, 44-41 þegar Eiríkur Önundarson loks setti þrist fyrir ÍR, og það langþráðan. Keflvíkingar ætluðu ekki að missa ÍR aftur of langt frá sér og Magnús Þór Gunnarsson nældi þá í villu af færni refsins þegar sekúnda var til hálfleiks, Magnús var í þriggja stiga skoti og þakkaði pent fyrir sig með því að hrúga öllum vítunum niður og staðan 49-46 í hálfleik og Gaukshreiðrið með Jack Nicholson í broddi fylkingar var stöðugra stykki en fyrri hálfleikurinn í Hellinum í kvöld.
Kelly Beidler var með 13 stig og 5 fráköst hjá ÍR í hálfleik en Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 12 stig og 4 fráköst í liði Keflavíkur.

Keflvíkingar voru fljótir að jafna í síðari hálfleik, Ciric setti þrist og staðan 51-51 og svæðisvörn Keflvíkinga áfram að leika heimamenn grátt. Leikurinn í heild var þó jafnari enda þurfti ekki mikið til eftir sveiflurnar í fyrri hálfleik. Sigurður Gunnar Þorsteinsson fór mikinn fyrir Keflavík á báðum endum vallarins og stóru strákarnir hjá ÍR voru í mesta basli með Ísafjarðartröllið.
Ciric fékk sína fjórðu villu eftir tæplega fjögurra mínútna leik í síðari hálfleik og í kjölfarði setti Eiríkur Önundarson niður þrist fyrir ÍR á mikilvægu augnabliki þegar Keflvíkingar virtust ætla að taka fram úr, Eiríkur minnkaði muninn í 57-58 og ÍR-ingar tóku á rás. Heimamenn gerðu næstu 16 stig gegn aðeins 6 frá Keflavík og staðan 73-64 ÍR í vil fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
ÍR opnaði fjórða leikhluta 4-0 áður en Halldór Örn Halldórsson sallaði niður Keflavíkurþrist, fljótlega sigu ÍR-ingar lengra og lengra frá Keflvíkingum og leiddu 86-75 þegar fimm mínútur voru til leiksloka.
Magnús Þór Gunnarsson minnkaði svo muninn í 92-80 fyrir Keflavík þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka en ÍR-ingar voru komnir í bílstjórasætið og kláruðu leikinn 106-89.
Liðin hafa nú unnið sinn hvorn heimaleikinn og því oddaleikur í Toyota-höllinni á miðvikudag. ÍR-inga bíður ærinn starfi enda Keflvíkingar búnir að vinna tíu heimaleiki í röð.
Byrjunarliðin:
ÍR: James Bartolotta, Níels Dungal, Sveinbjörn Claessen, Kelly Beidler og Nemanja Sovic.
Keflavík: Hörður Axel Vilhjálmsson, Thomas Sanders, Gunnar Einarsson, Andrija Ciric og Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Heildarskor:
ÍR: Kelly Biedler 27/12 fráköst/5 varin skot, Nemanja Sovic 22/10 fráköst, James Bartolotta 18/7 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 17/5 fráköst, Eiríkur Önundarson 10/8 stoðsendingar, Níels Dungal 6, Hjalti Friðriksson 6, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Tómas Aron Viggóson 0, Þorgrímur Emilsson 0, Davíð Þór Fritzson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0.
Keflavík: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 27/10 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 19/4 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 15/6 fráköst, Thomas Sanders 9, Gunnar Einarsson 8, Halldór Örn Halldórsson 6/5 fráköst, Andrija Ciric 5/4 fráköst, Almar Stefán Guðbrandsson 0, Þröstur Leó Jóhannsson 0, Jón Nordal Hafsteinsson 0, Gunnar H. Stefánsson 0, Elentínus Margeirsson 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson
Umfjöllun og myndir í grein/ Jón Björn Ólafsson – [email protected]





