Nemanja Sovic og James Bartolotta slökktu í vonum um skammvinnan viðsnúning í Ljónagryfjunni í kvöld þegar ÍR lagði heimamenn í Njarðvík 89-97. Gestirnir tóku frumkvæðið snemma leiks og voru í bílstjórasætinu uns lokaflautið gall. Með sigri ÍR-inga eru Njarðvíkingar komnir á framandi slóðir, í fallsæti ásamt KFÍ. Jómfrúarferð Friðriks Ragnarssonar og Einars Árna Jóhannssonar fór því fyrir lítið þetta tímabilið en gestirnir úr Breiðholti hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og ljóst að nýji liðsmaðurinn Bartolotta er happafengur fyrir Gunnar Sverrisson og félaga. Sovic og Bartolotta skoruðu saman 64 stig af 97 hjá ÍR í kvöld.
Kelly Biedler var ekki lengi að skrá sig í tilþrifabókina í kvöld þegar hann tróð með látum yfir eitt stykki Njarðvíkurteig. Gestirnir byrjuðu vel þar sem James Bartolotta var sjóðheitur, snöggtum var staðan orðin 11-20 og Bartolotta kominn með 10 af fyrstu 20 stigum gestanna en hann skoraði alls 17 stig í fyrsta leikhluta!
Vörn heimamanna var hriplek fyrstu átta mínúturnar uns þeir grænu skiptu yfir í svæðisvörn þegar tvær mínútur voru eftir. Það voru þó gestirnir sem leiddu 24-36 eftir upphafsleikhlutann og fyrstu tíu mínútur Einars og Friðriks í nýju starfi í Ljónagryfjunni nokkuð tilþrifalitlar.
Njarðvíkingar héldu áfram í svæðisvörn í öðrum leikhluta og töluvert hægðist á stigaskori beggja liða sem nú voru mun fastari fyrir í vörninni. Slokknað var í Bartolotta og skoraði hann ekki stig í öðrum leikhluta enda varnarmenn Njarðvíkurliðsins ekki reiðubúnir til þess að kvitta upp á að einhver kæmi í heimsókn og setti á þá mikið meira en 17 stig á 20 mínútum.
Heimamenn færðu sig hægt nærri ÍR þar sem bakvörðurinn Lárus Jónsson átti fína spretti hjá heimamönnum og Hjalti Friðriksson barðist vel í liði gestanna sem í kvöld léku án Eiríks Önundarsonar sem nældi sér í lungnabólgu á dögunum en vonast er til að hann verði klár í slaginn strax í næstu umferð.
Staðan í leikhléi var 38-45 ÍR í vil en Rúnar Ingi Erlingsson gerði síðustu stig hálfleiksins er hann stal boltanum af ÍR-ingum og minnkaði muninn í 7 stig. James Bartolotta var með 17 stig hjá ÍR í hálfleik og Nemanja Sovic 11 en hjá Njarðvíkingum var Christopher Smith með 10 stig.
Hjalti Friðriksson og Nemanja Sovic opnuðu síðari hálfleik með þrist á mann og staðan 40-51 fyrir ÍR. Gestirnir bjuggu sér til fín skotfæri og nýttu þau ágætlega með 46% teignýtingu í kvöld og 38% þriggja stiga nýtingu. ÍR hélt Njarðvíkingum fjarri og áttu ávallt góð svör við rispum heimamanna og leiddu því 60-72 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Á nýjan leik hófu ÍR-ingar leikhluta með tveimur þristum og nú voru þeir Sovic og Bartolotta að verki, tiltölulega þægileg skot hjá gestunum sem skrifast á slaka vörn heimamanna. Njarðvíkingar náðu þó hægt og bítandi að smokra sér nærri og eftir 9-0 áhlaup sem lauk með þriggja stiga körfu frá Guðmundi Jónssyni var staðan 73-82 og skömmu síðar 83-89 eftir annan þrist frá Guðmundi sem til allrar lukku fyrir heimamenn var farinn að hitta þokkalega á lokasprettinum eftir dræmar 30 mínútur af skotum sem vildu ekki niður.
Þegar um tvær mínútur voru til leiksloka var munurinn aðeins 7 stig, 85-92 en ÍR-ingar voru komnir með skotrétt svo allir varnartilburðir Njarðvíkinga enduðu oftar en ekki með gestina á vítalínunni og þannig tókst ÍR að landa öruggum og gríðarlega mikilvægum sigri í blóðugri botnbaráttu. Lokatölur í Ljónagryfjunni 89-97 ÍR í vil og fyrir vikið sendu þeir Njarðvíkinga á botninn með KFÍ og hafa grænir ekki verið á þessum slóðum síðan elstu menn muna.
Til þess að bæta gráu ofan á svart hjá Njarðvík þá meiddist Guðmundur Jónsson þegar innan við mínúta var til leiksloka og fékk hann aðstoð við að haltra inn í búningsklefa.
Heildarskor:
Njarðvík: Christopher Smith 21/5 fráköst/6 varin skot, Jóhann Árni Ólafsson 17/8 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 14, Rúnar Ingi Erlingsson 13/5 stoðsendingar, Friðrik E. Stefánsson 8/4 fráköst, Egill Jónasson 6/4 fráköst, Lárus Jónsson 4/4 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 4/4 fráköst, Páll Kristinsson 2, Hilmar Hafsteinsson 0, Ólafur Helgi Jónsson 0, Ágúst Hilmar Dearborn 0.
ÍR: Nemanja Sovic 32/6 fráköst, James Bartolotta 32/6 fráköst, Kelly Biedler 17/12 fráköst/5 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 9/7 fráköst, Kristinn Jónasson 3, Níels Dungal 2/4 fráköst, Sveinbjörn Claesson 2, Davíð Þór Fritzson 0, Friðrik Hjálmarsson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Þorgrímur Emilsson 0.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Jón Guðmundsson
Mynd/ Sovic átti glimrandi leik með ÍR í kvöld.




