Fyrr í kvöld mættust lið Þórs frá Þorlákshöfn og ÍR úr Breiðholtinu. Gengi Þórsara verið upp og ofan á meðan ÍR-ingar hafa verið að spila flottan körfubolta með frábærum stuðning Ghetto Hooligans. Heimamenn í 5.sæti deildarinnar með 20 stig á töflunni á meðan Breiðhiltingar sátu í 7.sæti með 18 stig.
Sterkur sigur á Þór Þ hjá mínum mönnum óþægilega stressandi í lokin! Hefði sjálfur lokað þessu með tveimur þristum. Vel gert strákar mínir!
— Kristján Andrésson (@stjanip) March 2, 2017
Fyrsti leikhluti fór mjög skemmtilega af stað, menn greinilega að finna skotin sín ennþá og tók það dágóðan tíma. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 10-12. Emil og Tobin með sitthvor 5 stigin fyrir Þórsara en 4 leikmenn komnir á blað hjá gestunum. Fór hægt af stað í Þorlákshöfn.
Varnarleikur beggja liða var mjög vel skipulagður og spiluðu bæði lið frábærar varnir í fyrri hálfleik. Liðin fóru að setja niður stórskot í 2.leikhluta og byrjaði það á frábærum þrist Danero Thomas og í kjölfarið af því kom frábær alley-op troðsla frá Quncy Hankins Cole, Ghetto Hooligans til mikillar gleði. Tobin Carberry svaraði þessum körfum ÍR-inga vel og ísaði þá aðeins niður með nokkrum glæsilegum körfum. ÍR-ingar fóru að gefa eftir og tóku slæman kafla sem Þórsarar nýttu sér frábærlega og stigu á bensíngjöfina og tókst þeim að komast 34-28 yfir í hálfleik. Tobin Carberry frábær í fyrri hálfleik með 17 stig þegar flautað var til hálfleiks.
Þriðji leikhluti fór mjög fjörlega af stað en Maciek Baginski setti niður einn glæsilegan þrist til að byrja leikhlutann. ÍR-ingar hikstuðu mikið í byrjun leikhlutans og komust Þórsarar mest í 11 stiga forystu. Þá fóru þeir aðeins að ranka við sér aftur. Gestirnir voru að elta allan leikhlutann en gáfust ekki upp og spiluðu hörku vörn og pressuðu hátt á Þórsliðið. Það skilaði sér þannig að Breiðhiltingum tókst að jafna leikinn í 48-48 þegar 2 mínútur voru eftir af leikhlutanum. Ekkert virtist ganga upp hjá Þórsliðinu eftir frábæran kafla fyrr í leikhlutanum. Þegar mínúta var eftir af leikhlutanum setti Ragnar Örn Bragason niður tvo risa þrista í röð og kom Þórsurum 7 stigum yfir eftir erfiðan kafla heimamanna. Staðan í lok leikhlutans 56-51 Þórsurum í vil. Stemningin svakaleg í Icelandic Glacial Höllinni og ljóst að mikið var undir fyrir bæði lið.
Liðin héldu uppteknum hætti í fjórða leikhluta en hann fór fjörlega af stað þrátt fyrir lítið stigaskor. Matthías Orri Sigurðarson kom ÍR 56-57 yfir með stórkostlegum þrist sem hann fylgdi með tveggja stiga floater, Danero Thomas setti svo þrist og staðan orðin 56-62 ÍR-ingum í vil. 0-11 kafli í leikhlutanum og 4:25 á klukkunni. Þegar mínúta lifði leiks leiddu gestirnir 66-70. Þegar 22 sekúndur voru eftir fór Tobin Carberry á línuna og tókst að minnka muninn niður í 3 stig. Danero Thomas fór á línuna hinum megin og setti annað af tveimur vítum niður. ÍR því 4 stigum yfir 69-73 þegar 20 sekúndur voru eftir af leiknum og Þór með boltann. Þeir skoruðu einhverja auðveldustu körfu sem hægt var að ýminda sér en vörn ÍR gleymdi sér og Ólafur Helgi skoraði auðvelt lay-up og Borche tók leikhlé. 19 sekúndur á klukkunni. Matthías Orri fór á línuna setti fyrra og klikkaði á seinna, Þórsarar fengu því einn séns til þess að jafna leikinn en fóru ansi illa að ráði sínu og tókst þeim ekki að setja niður körfuna sem þurfti.
Leiknum lauk með 3 stiga sigri gestanna í hreint ótrúlegum viðsnúningi en það benti ekkert til þess um miðjan 3.leikhluta að ÍR-ingar kæmu til baka.
Stigaskor liðanna skiptist svona:
Þór Þ.: Tobin Carberry 27, Maciek Baginski 12, Ólafur Helgi Jónsson 11, Ragnar Örn Bragason 8, Emil Karel Einarsson 7, Halldór Garðar Hermannsson 6.
ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 21, Danero Thomas 21, Quincy Hankins Cole 14, Sveinbjörn Claessen 14, Hákon Örn Hjálmarsson 4.
Lykillinn
Lykillinn að góðum sigri ÍR-inga í Þorlákshöfn var baráttan og viljinn til þess að taka sigurinn. Svo virtist sem gestirnir væru tilbúnir til þess að gefa hvern einasta blóðdropa í þetta verkefni og skilaði það sér með þessum iðnaðarsigri. Samheldni liðsins var frábær og þegar illa gekk þá börðu men lífi í hvorn annan og héldu áfram að berjast. Eins og áður kom fram þá benti ekkert til þessi um miðjan 3.leikhluta að ÍR-ingar væru að fara að sigra þennan leik en frábær barátta og hrun Þórsara hjálpaði þeim í því.
Áhyggjuefnið
Áhyggjuefni Þórs: Taugarnar. Menn virtust bugast undir stressinu og fóru að taka slæmar ákvarðanir eins og gerist í spennuleikjum sem þessum. Menn fengu sénsa á línunni sem þeir nýttu illa og lokasóknin var mjög spes svo vægt sé til orða tekið. Þannig hvort þetta sé áhyggjuefni er í raun og veru bara matsatriði.
Áhyggjuefni ÍR: Quincy Hankins Cole. Þetta hljómar fáranlega við fyrstu hlustir en ég ætla að fá að útskýra. Quincy er frábær karakter og góður leikmaður sem gefur deildinni skemmtilegan lit hvert sem hann fer. Ástæðan fyrir því að ég nefni hann sem áhyggjuefnið er að hann átti gríðarlega erfitt með að einbeita sér að verkefninu og var á köflum bara að spá í því hvað stuðningsmannasveitin Ghetto Hooligans var að syngja um hann. Í leikhléum var hann oft utan við sig og hann eyddi miklu púðri í það að fagna fyrir stuðningsmannasveitina og að tuða í dómurunum í stað þess að drífa sig í vörn.
Stúkan
Stúkan var frábær í Þorlákshöfn. Stuðningsmenn ÍR Ghetto Hooligans sungu og trölluðu allan leikinn og voru frábærir. Græni Drekinn virðist lifa á fornri frægð en Þorlákshafnarbúar létu vel í sér heyra í kvöld og væri hreint ósanngjarnt að kvarta yfir því. Stemningin í stúkunni minnti á gamla tíma í Þorlákshöfn sem var frábært.
Þarf að kjósa um bestu stuðningsmennina? Þetta er borðliggjandi #dominos365 pic.twitter.com/bXyQ16WJBX
— Bjarki Jóhannsson (@Bjarkifj) March 2, 2017
Umfjöllun / Axel Örn Sæmundsson




