Á yfirstandandi síðustu leiktíð tók Finnur Freyr Stefánsson við kvennaliði KR og verður áfram í brúnni þessa leiktíðina. Sterkir leikmenn hafa sagt skilið við DHL-Höllina fyrir þetta tímabil en kjarnakonan Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir er komin aftur og þá mega bakverðir landsins vara sig. Finnur situr fyrir svörum fyrir hönd KR-inga í þessu innliti.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir er farin aftur í Keflavík eftir stutt stopp hér í Vesturbænum og Ragnhildur Arna er í skiptinámi í Norður-Karolínu í Bandaríkjunum. Auk þess er Margrét Kara er í barneignarfríi einsog frægt er orðið en verður með okkur á hliðarlínunni í vetur. Komnar eru Björg Einarsdóttir úr Hólminum og Guðrún Gróa er mætt aftur á parketið. Auk þeirra hafa ungar stelpur úr yngri flokka starfinu komið inn í æfingahópinn. Loks mun Patechia Hartman spila með liðinu í vetur en hún leysir Ericu Prosser af hólmi.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Það hefur gengið upp og ofan. Mikið af meiðslum hafa verið að hrjá liðið og hefur það vissulega haft áhrif á undirbúninginn. Við erum einhverjum vikum á eftir áætlun en það er bara áskorun sem við munum takast á við. Stelpurnar eru duglegar og þetta er samheldinn hópur og það mun vega þungt þegar upp er staðið.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst bara vel í mig. Mér finnst góður gangur á liðunum í deildinni og ég sé ekki annað fyrir mér en að þetta verði hörkubarátta um öll sæti.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Í fljótu bragði sýnist mér Keflavík, Valur og Snæfell vera öflugust eins og staðan er í dag. Keflavík er með mjög skemmtilega blöndu af reynslu og frábærum ungum stelpum eins og Söru, Söndru og Ingunni. Valur er með hörku breidd og án efa stærsta liðið með þær Rögnu Margréti og Signýju í teignum. Snæfell er svo með skemmtilega vel uppsett lið og hörku byrjunarlið, þær búa vel að því að fá Kieruh Marlow og aftur og ættu því að vera fljótar að ná taktinum. Svo hljóta Grindvíkingar að verða öflugar eftir að hafa fengið 60% af byrjunarliði Íslandsmeistaranna aftur heim.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Ég held að þeir verði ansi margir leikmennirnir sem muni stíga upp eftir að hafa verið í skugganum í fyrra og fá aukna ábyrgð. Það eru leikmenn í öllum liðum sem maður er spenntur að sjá og er þetta langt frá því að vera tæmandi upptalning. Ungu stelpurnar í Keflavík sem ég taldi hérna upp fyrir ofan eru skemmtilegir spilarar og svo hef ég það á tilfinningunni að það sé hörkuvetur framundan hjá Birnu. Njarðvíkingar eiga einnig ungar stelpur sem munu fá dýrmæta reynslu í vetur. Guðbjörg Sverris í Val virðist koma vel undan sumri og hef ég trú á að hún muni festa sig í sessi sem einn af betri leikmönnum í deildinni. Berglind Gunnars í Snæfelli er leikmaður sem ég hvet fólk að fylgjast með sem og Hildi Björgu Kjartansdóttur. Margrét Rósa í Haukum er svo stórskemmtilegur leikmaður og hún og Gunnhildur Gunnarsdóttir munu stíga upp í fjarveru þeirra Írisar og Guðrúnar Óskar. Bergdís Ragnarsdóttir virðist hafa átt gott sumar og er að spila vel fyrir Fjölni þessa daganna. Loks eru Grindvíkingar með með hana Ingibjörgu Sigurðardóttir sem er dúndur byssa og á eftir að kveikja í nokkrum netunum í vetur. Það er því full ástæða fyrir fólk að vera spennt fyrir deildinni í vetur og vona ég að það verði duglegt að mæta á völlinn.
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
Fyrsta umferð:
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar




