Falur Harðarson lét af þjálfun kvennaliðs Keflavíkur að loknu síðasta tímabili og við starfanum tók Sigurður Ingimundarson sem nú þjálfar báða meistaraflokkana í Toyota-höllinni. Sigurður þekkir hvern krók og kima í kvennaboltanum og hefur áður verið í brúnni hjá kvennaliðinu. Hann situr hér fyrir svörum í innlitinu og verður með Keflavíkurkonur í eldlínunni í kvöld þegar þær leika til Lengjubikarsúrslita gegn Snæfell.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Jailesa Butler farin, Helga Hallgríms farin í UMFG, Hrund Jóhanns er hætt og Lovísa Falsdóttir er komin til Bandaríkjanna. Komnar eru Bryndís Guðmundsdóttir til baka frá KR og Jessica Jenkins frá Bandaríkjunum.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undibúningstímabilið hefur gengið mjög vel og allt að komast á góðan skrið hjá okkur.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Komandi tímbil verður mjög spennandi fyrir Keflavíkurliðið sem ætlar sér stóra hluti þar.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Fyrirfram lítur út fyrir að Haukar , Snæfell og Valur séu nokkuð sterk lið.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Það er nokkuð ljóst að nokkrar ungar stúlkur úr Keflavík munu láta verulega að sér kveða í vetur.
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
Fyrsta umferð:
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík





