spot_img
HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar

Haukar léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Njarðvík á síðustu leiktíð og buðu upp á hetjulega frammistöðu eftir að hafa misst Guðrúnu Ámundadóttur og Írisi Sverrisdóttur í meiðsli. Það er þjálfari liðsins, Bjarni Magnússon sem hefur orðið fyrir Hauka í þessu innliti.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hafa orðið töluverðar breytingar, hvorug þeirra erlendu leikmanna sem voru síðasta vetur koma aftur. Eins er Íris Sverrisdóttir frá vegna meiðsla og verður ekkert með í vetur og eins er spurning með Guðrúnu Ósk Ámundadóttur. Hún er á fullu hjá sjúkraþjálfara að byggja sig upp eftir sín krossbandaslit og algjörlega óvíst hvenær hún kemur á parketið aftur. Einnig hefur Sara Pálmadóttir týnt skónum sínum og mun að öllu óbreyttu ekki spila með í vetur. Á móti hafa tvær uppaldar Haukastelpur komið heim aftur eftir árs dvöl erlendis, þær Dagbjört og Lovísa og einnig fengum við Jóhönnu Björk til okkar en hún spilaði með Breiðablik síðasta vetur.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Það hefur gengið alveg ágætlega, stelpurnar hafa verið að æfa vel í sumar þannig að þær ættu að vera í góðu standi þegar Íslandsmótið byrjar.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Mér list vel á Domino´s deildina í vetur. Það verður nátturulega mikil breyting á deildinni samanborið við tímabilið í fyrra þar sem erlendum leikmönnum mun fækka til muna. Þannig að íslensku stelpurnar fá fleiri mínútur heldur en í fyrra, sem er jákvætt. Að vísu skildi ég ekki alveg alla þessa umræðu sem var um fjölda erlenda leikmanna, fannst þetta vera stormur í vatnsglasi. En formenn deildana ákváðu að breyta þessu, sem er í góðum í gír.  En að þeir skildu þá ekki hafa sambærilegar reglur í kvenna og karla boltanum er náttúrulega alveg ótrúlegt. Og öll rök sem ég hef heyrt og lesið um þennan gjörning, finnst mér mjög skrýtin svo ekki sé meira sagt! Það segir sig alveg sjálft að það að vera með mismunandi reglur í efstu deild kvenna og karla, er furðulegur gjörningur! En burt sé frá þessum reglum og ekki reglum, þá líst mér vel á komandi tímabil og er mikil tilhlökkun í hópnum og öllu því frábæra fólki sem stendur á bak við körfuna hjá Haukum, að spila fyrsta leikinn í Domino´s deildinni. 
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Eins og ég sé þetta í dag þá verða Valur og Keflavík án efa í toppbáráttunni, lið með marga mjög góða leikmenn, mikla reynslu og með góða breidd ásamt því að vera með góða reynslumikla þjálfara. Einnig er Snæfell með hörku leikmenn og svo er Ingi Þór topp þjálfari og góður drengur þannig að  það kæmi mér ekki á óvart ef þær blönduðu sér í þessa baráttu líka. En breiddin hjá þeim er kannski ekki eins mikil og hjá Val og Keflavík og það gæti skipt sköpum. Því ef lið fer langt í öllum keppnum þá gætu þetta orðið rétt um 50 leikir á tímabilinu, þannig að það segir sig sjálft að fyrirfram eru það liðin sem eru með mestu breiddina eru sigurstranglegust. 
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Ef ég tala bara um Haukaliðið þá er ég spenntur fyrir öllum mínum leikmönnum. Það er mikið  af ungum leikmönnum að koma upp sem ég hlakka til að vinna með í vetur sem og að halda áfram að vinna með þessum "gömlu". Og eins og ég minntist á áður, að þar sem mikil reynsla er farin úr liðinu þá fá aðrir leikmenn aukna ábyrgð og tækifæri á að sýna sig og sanna, hver er ekki spenntur fyrir því?
 
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
 
Fyrsta umferð:
 
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
 
Fréttir
- Auglýsing -