Nú er komið að því að gera innlit hjá liðunum sem skipa munu Domino´s deild karla þennan veturinn. Við hefjum leik hjá nýliðum KFÍ á Ísafirði þar sem Pétur Sigurðsson er við stjórnartaumana en hann stýrði KFÍ til sigurs í 1. deildinni á síðasta tímabili og inn í undanúrslit Poweradebikarsins þar sem liðið lá í hörkuleik gegn Keflavík.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hafa orðið nokkrar breytingar hjá okkur fyrir þetta tímabil. Ég er búinn að missa nokkra unga leikmenn í burtu í nám. Sævar Vignisson, Guðni Guðnason og Hermann Hermannsson fóru í höfuðborgina í háskólanám. Svo ákvað Hlynur Hreinsson að leggja land undir fót til Danmerkur í nám. Ari Gylfason ákvað að fara aftur á heimaslóðir á Selfoss. Til liðsins hef ég fengið BJ Spencer, reynslumikill bakvörður sem hefur spilað í stórum deildum í Evrópu. Chris Williams er kominn til baka og svo er Mirko Virjivic mættur vestur. Einnig er Guðmundur Guðmundsson kominn til baka frá Tindastól. Pance Ilveski ákvað svo að taka fram skóna aftur með okkur í vetur. Einnig ákvað ég að taka 3 erlenda ígildið og fyrir valinu var Momcilo Latinovic, sterkur strákur úr D2 skóla í BNA.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningstímabilið er búið að vera ágætt. Jón Odds styrktarþjálfari hjá mér er búinn að vera með þá í hörkuprógrami í allt sumar. Liðsundirbúningur er búinn að vera stuttur en hnitmiðaður.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Deildin leggst mjög vel í mig. Hún verður vonandi jöfn og skemmtileg, mér sýnist að lið séu vel mönnuð og vel þjálfuð. Lið eru farin að nýta sumarið mun betur en áður og skilar það sér í betri gæðum körfuknattleiks.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Mér sýnist þetta Grindavík, KR, Stjarnan, Snæfell, Keflavík og Þór Þ. Gæti reyndar hent öllum liðunum þarna inn í. Spái að þetta verði mjög jöfn deild.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Er hrifinn af strákunum hans Jóns Kr. í Stjörnunni. Einnig verður gaman að fylgjast með Val Orra í Keflavík og Stefáni Karel í Snæfell. Martin í KR er gríðalega efnilegur og á eftir að vera flottur í vetur.
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
Fyrsta umferðin
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
