HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Keflavík

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Keflavík

Rétt eins og í innlitinu hjá kvennaliði Keflavíkur er það Sigurður Ingimundarson sem stendur skil á svörunum hjá karlaliði Keflavíkur en Sigurður verður á leiktíðinni aðalþjálfari beggja liða.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Halldór Halldórsson er hættur, Arnar Freyr farinn til Danmerkur, Gunnar Stefánsson er hættur, Guðmundur Gunnarsson og Sigurður Gunnarsson einnig hættir. Komnir eru Snorri Hrafnkelsson, Darryl Lewis, Kevin Glitner og von á einum Bandaríkjamanni til viðbótar.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningurinn hefur verið sérstakur, leikmenn komið seint inn en ég er samt ánægður með stöðuna eins og hún er núna.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst mjög vel í mig , held að þetta verði flott og skemmtilegt tímabil þar sem að öll liðin verða vel samkeppnishæf og boltinn verður almennt flottur.
 
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
KR, Grindavík, Snæfell og Þór Þorlákshöfn eru allt flott lið , ég gæti talið fleiri lið sem er bara flott og sýnir hvað deildin hjá okkur er sterk.
 
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjir stíga upp?
Við erum með fullt af ungum leikmönnum sem eru allir að bæta við sig og eru að æfa mjög vel og reyna að bæta sig daglega, er spenntur að sjá þá framþróun.
 
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
 
Fyrsta umferðin
 
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
 
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
  
Fréttir
- Auglýsing -