spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaIngibjörg Jakobsdóttir með Grindavík í vetur

Ingibjörg Jakobsdóttir með Grindavík í vetur

 

Bakvörðurinn Ingibjörg Jakobsdóttir mun leika með liði Grindavíkur í 1. deild kvenna á komandi tímabili, en hún fór í barneignarleyfi fyrir síðasta tímabil. Þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára gömul hefur Ingibjörg mikla reynslu. Bæði með uppeldisfélagi sínu í Grindavík og þá lék hún einnig með Keflavík 2011 til 2013. 

 

Ljóst er að um mikinn liðsstyrk er að ræða fyrir félagið. Áður en að Ingibjörg fór í leyfi hafði hún leikið 16 landsleiki fyrir Íslands hönd, frá árinu 2007 til ársins 2016.

Fréttir
- Auglýsing -