HomeNeðri deildir1. deild karlaIngi Þór eftir fullkomið tímabil KFG ,,Ótrúlega stoltur af strákunum"

Ingi Þór eftir fullkomið tímabil KFG ,,Ótrúlega stoltur af strákunum”

Laugdælir/Uppsveitir og KFG mættust á dögunum í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um sæti í 1. deild karla í körfubolta.

Mikið var undir í leiknum en KFG leiddi einvígið 1–0 fyrir viðureignina eftir sigur í fyrsta leik. Leikurinn var hnífjafn og spennandi frá upphafi til enda þar sem liðin skiptust á að hafa yfirburði og gera áhlaup. Laugdælir/Uppsveitir virtust ætla að knýja fram oddaleik en Garðbæingar sýndu mikla seiglu, jöfnuðu metin á lokasekúndu venjulegs leiktíma og tryggðu sér að lokum sigurinn í framlengingu, 127–119.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Inga Þór Steinþórsson þjálfara KFG eftir leik.

Fréttir
- Auglýsing -