spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÍA var loksins ÍA á Akranesi

ÍA var loksins ÍA á Akranesi


ÍA tók á móti Keflavík í 18. umferð Bónus deildarinnar í AvAir höllinni á Akranesi kvöld.
Fyrir leikinn vermdi ÍA botn sætið í deildinni með aðeins 6 stig (3/14) og hafði tapað 9 leikjum í röð.  Keflavík sat í 5. sæti með 20 stig (10/7) í harðri baráttu um heimavallar réttinn í komandi úrslitakeppni en  hafði “aðeins” unnið 4 af síðustu 9 leikjum sínum í deildinni.


Leikur kvöldsins var því mjög mikilvægur fyrir bæði lið á sinn hátt.Keflvíkingar opnuðu leikinn í kvöld með tveimur fyrstu körfum leiksins.  ÍA komst svo á blað með stigum af vítalínunni þegar flestir í höllinni reiknuðu með óíþróttamannslegri villu á Keflavík en venjuleg villa var dæmd.  Liðin skiptust svo á að skora í næstu sóknum á eftir en heimamenn komust yfir í fyrsta skipti í leiknum um miðjan fyrsta leikhluta í stöðunni 16-15.  Óhætt er að segja að mikið jafnræði hafi verið með liðunum það sem eftir lifði leikhlutans en góð síðasta sókn ÍA skilaði þeim 31-27 forystu að leik hlutanum loknum eftir að dæmt hafði verið sóknarbort á Keflavík í þeirra síðustu sókn

Heimamenn byrjuðu með boltann í öðrum leikhluta og settu niður fyrstu körfu leikhlutans en liðunum gekk illa að kora og eftir um 3ja mínútna leik var staðan 33-29, ein skoruð karfa á hvort lið.  Sóknarleikur liðanna hélt áfram að vera stirður og ÍA tók leikhlé um miðjan leikhlutann sem fór betur í gestina sem náðu forystunni aftur í stöðunni 38-39 og virtust komast við það á bragðið og leiddu með tíu stigum í hálfleik, 45-55.

Seinnihálfleikur hófst eins og sá fyrr, Keflavík skoraði fyrstu stigin á meðan sóknarleikur Skagamanna hikstaði.  ÍA náði svo aftur jafnvægi í sóknarleik sinn en misnotuðu alltof mörg sniðskot og komust því hægar inn í leikinn en þeir hefðu getað.  Keflvíkingum leist þó ekki á blikuna og treystu ekki á að þessi sniðskot myndu halda áfram að geiga og tók leikhlé í stöðunni 60-66 og rétt rúmar fjórar mínútur eftir af þriðja leikhluta.  Leikhléið virkaði ágætlega fyrir Keflvíkinga sem náðu muninum aftur upp í tíu stig á næstu tveimur mínútum.  Þá fóru Skagamenn að bíta frá sér, hertu vörnina og settu niður flautu þrist í lok leikhlutans og staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 74-77 Keflavík í vil.

Meðbyrinn sem ÍA tók með sér úr þriðja leikhluta inn í þann fjórða var sterkur og heimamenn settu niður fyrstu ffjögur stig leikhlutans og komust yfir í fyrsta sinn í seinni hálfleik, 78-77.  Varnarleikur ÍA hélt áfram að vera góður og ákvarðanataka Keflavíkur í sóknarleik þeirra var flókin og gaf lítið á meðan sókn ÍA var á pari.  Keflavík sá sig knúið til að taka leikhlé þegar um sex og hálf mínúta var eftir og ÍA leiddi með fimm stigum, 86-81. Stuttu eftir leikhléið var ÍA fyrir því að Styrmir Jónasson fékk sína fimmtu villu þegar um fimm og hálf mínúta var eftir.  Virkilega ódýr villa miðað við það sem leikurinn hafði haft upp á að bjóða.  Þarna var eins og ný lína væri komin í leikinn því í næstu sókn íA vildu Keflvíkingar fá sóknarvillu á ÍA en dæmd var varnarvilla á Keflavík. 

Það fór illa í bekkinn hjá Keflavík sem endaði með tæknivillu á bekkinn.  Þá tóku við æsi spennandi lokamínútur, ÍA héldu forustunni til að byrja með en Keflvíkingar söxuðu hana smátt og smátt niður. ÍA tók þá leikhlé þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru eftir og staðan 92-91 fyrir ÍA.  Skagamenn komu svo út úr leikhléinu og settu strax niður þrist, liðin skiptust svo á að tapa boltanum áður en ÍA setti niður langan tvist en Keflvíkingar settu niður eitt skot og eitt víti á meðan. 

ÍA tapaði svo boltanum í stöðunni 97-94 þegar um 50 sekúndur voru eftir.  Keflavík fór í sókn, brot var dæmt á ÍA og dómarar leiksins hentu í kjölfarið tæknivillu á bekkinn hjá ÍA.  Keflvíkingar settu niður tvö af þremur vítum sínum, staðan orðin 97-96 og 38 sekúndur eftir og ÍA tók leikhlé. 

Skagamenn fóru eftir leikhléið í nokkuð langa sókn, nýttu skotklukkuna eins og þeir gátu en misnotuðu svo skot sitt.  Keflvíkingar héldu þá í hraða sókn, misstu boltann og svo fór að leiknum lauk með langþráðum sigri heimamanna í ÍA á Akranesi, sem ætluðu sér greinilega ekki að tapa sínum tíunda leik í röð.  Loka tölur leiksins ÍA 97 Keflavík 96.

Hjá ÍA í kvöld:
-Darryl Morsell 36 stig, 9 fráköst, 5 stoðsendingar, 2 varin skot
-Ivan Gavrilovic 24 stig, 7 fráköst
-Gojko Zudzum 16 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolnir boltar
-Styrmir Jónasson 12 stig, 2 fráköst, 5 villur
-Illja Dokovic 9 stig, 3 fráköst, 10 stoðsendingar

Hjá Keflavík í kvöld:
-Egor Koulechov 24 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar
-Hilmar Pétursson 23 stig, 10 stoðsendingar
-Craig Moller 22 stig, 7 fráköst, 2 stolnir boltar
-Mirza Bulic 15 stig, 10 fráköst, 4 stoðsendingar
-Ólafur Björn Gunnlaugsson 10 stig, 2 fráköst, 3 stoðsendingar
-Eyþór Lár Bárðarson 2 stig, 3 fráköst

Nánari tölfræði leiksins hér

Athyglisverðir punktar úr leiknum:

-Þryggjastiga nýting liðanna í fyrsta leikhluta var mjög góð:
    ÍA 4 af 6
    Keflavík 5 af 9
-ÍA tók aðeins tvö þriggja stiga skot í öðrum leikhluta og klikkuðu bæði.
-Vítanýting ÍA í fyrrihálfleik var einugis 50%, 5 af 10.
-Keflavík vann annan leikhluta 28-14
-Ekkert stig kom af bekknum hjá ÍA í leiknum.
-Bekkurinn hjá Keflavík skilaði 2 stigum í leiknum.
-Darryl Morsell var að spila gegn sínum gömlu félögum og skoraði 36 stig í leiknum.
-Gojko Zudzum var að spila sinn fyrsta heimaleik síðan í síðasta sigri ÍA 21. nóvember 2025.
-Annan leikinn í röð var Remy Martin frá hjá Keflavík.
-Jaka Brodnik var á skýrslu hjá Keflavík í kvöld en kom ekkert við sögu í leiknum.

Umfjöllun / HGH
Myndir / Jónas H. Ottósson

Fréttir
- Auglýsing -