Önnur úrslitaviðureign ÍA og Skallagríms í 1. deild karla er við það að hefjast að Jaðarsbökkum á Akranesi. Skallagrímur leiðir 1-0 í einvíginu og getur með sigri í kvöld tryggt sér sæti í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð. Karfan.is fylgist með gangi mála á Skaganum hér að neðan í textalýsingu:
Leik lokið: Terrence Watson setti niður tvö víti á lokasekúndunum og lokatölur reyndust 89-84 fyrir ÍA og því verður oddaleikur millum liðanna um laust sæti í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð. Oddaleikurinn fer fram í Borgarnesi á þriðjudag.
5,7 sek… Hörður Helgi Hreiðarsson var að misnota tvö víti sem gera það fjögur í röð hjá kappanum. Borgnesingar brutu af sér í frákastabaráttunni og Skagamenn þremur stigum yfir halda á vítalínuna hinum megin og geta gulltryggt sér sigurinn.
9 sek og Hörður Nikk er á vítalínunni og breytir stöðunni í 87-84 og Skallagrímur tekur leikhlé! Borgnesingar þurfa þrist til að jafna og knýja fram framlengingu.
18 sek Terrence náði sóknarfrákasti fyrir ÍA
40 sek eftir og Sigmar minnkar muninn fyrir Skallana í 85-84 af vítalínunni.
– 1.17mín eftir – Lorenzo keyrði inn endalínuna hægra megin og skoraði fyrir ÍA 85-82 og Borgnesingar taka leikhlé. Hér eru vel flestir áhorfendur komnir á fætur og Jaðarsbakkar skarta sínu fegursta!
– 1.56mín eftir – Flake kominn með fimm villur, Hörður Nikk að koma ÍA í 83-82 af vítalínunni.
– 2.17mín eftir hér á Skaganum, leikhlé í gangi og staðan 82-82, ÍA hefur gert 10 stig í leikhlutanum en Skallagrímur 14. Flake og Sumner á 4 villum, Trausti sömuleiðis hjá ÍA.
– 3.22mín til leiksloka og staðan 82-80 fyrir ÍA. Hér gera menn allt nema að skora! Myndarlegur ,,naglbítur" í gangi. Af hverju ert þú ekki á Skaganum?
– 4.21mín til leiksloka og staðan enn 80-79… menn orðnir ragir við að taka af skarið og pressan farin að segja til sín. Leikhlé í gangi og trommur beggja stuðningssveita í yfirvinnu.
– 6.20mín til leiksloka og 80-79 fyrir ÍA.
– TERRENCE WATSON var hér enda við að ,,blokka" ,,alley-up" sendingu – maður sér það ekki á hverjum degi.
– ÍA 73-74 Skallagrímur og 1-6 byrjun gestanna á fjórða leikhluta… þetta ræðst ekki fyrr en feita konan hefur sungið.
– Þriðja leikhluta lokið: Staðan er 72-68 fyrir ÍA. Heimamenn unnu leikhlutann 15-14 þar sem vörnin var allsráðandi. Lloyd Harrison hefur verið að draga Skallagrímsvagninn en Sigurður Rúnar Sigurðsson kom með fína innkomu í þriðja hjá ÍA.
– 1.22mín eftir af þriðja: ÍA 70-68 Skallagrímur…hér er allt komið í brotajárn og mögnuð spenna að Jaðarsbökkum.
– 4.10mín eftir af þriðja: ÍA 66-63 SKALL… aðeins jú búið að hægja á stigaskorinu frá því í öðrum leikhluta, enn hraður og skemmtilegur leikur og það er farið að segja til sín. Menn farnir að blása um víðan völl.
– 7.00mín eftir af þriðja: ÍA 61-61 Skallagrímur…góð læti í kofanum og liðin virðast ætla að halda sig við ,,sóknarleik" en láta vörnina svona í 2. sætið í kvöld.
Síðari hálfleikur er hafinn:
Skotnýting liðanna í hálfleik:
ÍA: Tveggja 63,1%, þriggja 20% og víti 60%
Skallagrímur: Tveggja 71,4%, þriggja 30% og víti 75%
Hálfleikur: ÍA 57-54 Skallagrímur. Borgnesingar unnu annan leikhluta 31-35. Flake er kominn með 15 stig og 6 fráköst hjá Skallagrím en í liði Skagamanna er Áskell Jónsson kominn með 17 stig.
– 3.01mín til hálfleiks: ÍA 49-40 Skallagrímur…Áskell Jónsson að fá dæmda á sig óíþróttamannslega villu í liði ÍA.
– 4.16mín til hálfleiks: Hörður Helgi Hreiðarsson kominn með þrjár villur í liði Skallagríms. Var annar aðilinn í tvívillu með Watson og svo fékk hann dæmda á sig ruðningsvillu strax í næstu sókn.
– 5.00mín til hálfleiks: ÍA 42-33 Skallagrímur, Lorenzo og Watson hafa verið Borgnesingum afar illir viðureignar síðustu mínútur. Skaginn spilar aggressíva vörn þrátt fyrir að vera komnir með Skallagrímsmenn í skotrétt.
– Hörður Nikulásson að fá sína þriðju villu í liði Skagamanna þegar 7mínútur eru til hálfleiks. Kappinn fór beint á tréverkið fyrir vikið.
– ÍA 31-25 Skallag´rimur og 2.10mín liðnar af öðrum leikhluta, heimamenn í ÍA eru enn svona með undirtökin en gestirnir aldrei langt undan. Mikil keyrsla á báðum liðum og heimamenn eru virkilega á tánum í vörninni.
– Fyrsta leikhluta lokið: Staðan 26-19 IA í vil. Áskell Jónsson gerði lokastig leikhlutans með fínu gegnumbroti en Áskell er búinn að vera líflegur í fyrsta hluta með 10 stig fyrir Skagamenn.
– 32 sek eftir af fyrsta hluta: Skaginn með forystuna á ný, 24-19, Lorenzo var að splæsa í fína sunnudagstroðslu.
– 3.22mín eftir af fyrsta: Staðan 14-17 fyrir Skallagrím, Hörður Helgi skoraði og fékk villu að auki.
– Egill Egilsson brýst í gegn og fær villu, brennir af vítinu en staðan 12-10 fyrir ÍA og 5.00 eftir af fyrsta leikhluta.
– Svona líta byrjunarliðin út:
ÍA: Lorenzo McClelland, Hörður Nikulásson, Terrance Watson, Áskell Jónsson, Dagur Þórisson.
Skallagrímur: Lloyd Harrison, Sigmar Egilsson, Hörður Helgi Hreiðarsson, Egill Egilsson, Darrell Flake.
ÍA: Lorenzo McClelland, Hörður Nikulásson, Terrance Watson, Áskell Jónsson, Dagur Þórisson.
Skallagrímur: Lloyd Harrison, Sigmar Egilsson, Hörður Helgi Hreiðarsson, Egill Egilsson, Darrell Flake.
– Leikur hafinn, Skagamenn byrja með 6-2 látum og stemmning í húsinu.
– Bæði lið eru mætt með vaskar trommusveitir og Jaðarsbakkar eru fullir út úr dyrum, flott mæting hér í gula húsinu.
– Nú eru örfáar mínútur í leik og Pétur Hrafn Sigurðsson eftirlitsdómari er búinn að stilla alla af og styttist í að hægt verði að flauta leikinn á.
Mynd/ Skagamenn berja saman hópinn við kynningu liðanna að Jaðarsbökkum áðan.




