19:54
{mosimage}
Skagamenn unnu Árvak mjög örugglega 98-58 í gærkvöldi og eru því komnir í úrslitakeppninna í 2.deild. Leikurinn var tímamótaleikur fyrir Jón Þór leikmann ÍA því hann var að spila sinn 250 leik fyrir félagið á Íslandsmóti og gamla brýnið setti 9 stig í leiknum.
Leikurinn varð einnig tímamót fyrir Halldór G. Jónsson því hann setti 37.stig í leiknum sem er persónulegt met í meistaraflokki og hann skoraði 9.þriggja stiga körfur sem er einnig persónulegt met,hann hafði mest skorað 35 stig í Íslandsmóti fyrir Selfoss tímabilið 2003/2004.
{mosimage}
Jón Þór Þórðarson fékk viðurkenningu
Einnig má finna umfjöllun um leikinn á heimasíðu ÍA
Eins og fyrr segir er ÍA komið í úrslitakeppni 2. deildarinnar ásamt Hrunamönnum. Hvaða tvö lið komast úr B riðli er ekki ljóst enn en þar eru Vestmanneyingar og Mostramenn í góðum málum
Myndir: Halldór G. Jónsson



