Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao Basket halda í vonina um sæti í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 88-83 sigur á Granada í dag.
Eftir sigurinn er Bilbao jafnt Unicaja í 8. til 9. sæti deildarinnar, en aðeins ein umferð er eftir af deildarkeppninni. Tryggvi átti góðan leik fyrir sína menn, en hann skoraði níu stig, tók átta fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Leikurinn var sá fyrsti hjá liðinu eftir að það tryggði sér Evrópubikartitilinn fyrr í vikunni.




