HomeBónus deildinBónus deild karlaHvort fer Valur eða Keflavík í undanúrslit

Hvort fer Valur eða Keflavík í undanúrslit

Í kvöld fer fram oddaleikur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem Valur og Keflavík mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum. Búast má við mikilli spennu á Hlíðarenda enda hafa bæði lið sýnt mikla hörku í þessu einvígi hingað til og mikið er í húfi fyrir bæði félög.

Leikurinn fer fram í N1-höllinni og er þetta tækifærið fyrir annað hvort liðið að tryggja áframhaldandi þátttöku í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Undanúrslitin sjálf hefjast svo eftir helgina, en siguvegari kvöldsins mun mæta deildarmeisturum Grindavíkur.

Leikur dagsins

Bónus deild karla – 8 liða úrslit

Valur Keflavík – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -