Skagamenn tóku á móti Fjölnismönnum í kvöld. Þetta var annar leikur liðanna á stuttum tíma en Fjölnismenn slógu ÍA einmitt út úr Maltbikarnum fyrir stuttu, nokkuð sannfærandi.
Leikurinn í kvöld var hins vegar hörku skemmtilegur og varð á endanum virkilega spennandi en lokatölur urðu ÍA 71 Fjölnir 72.
1 stig til eða frá
Fjölnismenn ætluðu að keyra þennan leik á sinni akgrein frá fyrstu mínútu og komust strax í 10 – 0. En ÍA voru ekki á því að þetta yrði þannig leikur, jöfnuðu leikinn og leiddu með 12 stigum í hálfleik.
Sagan segir að hárblásarinn hafi verið settur í samband inn í klefa hjá Fjölni í hálfleik og skilaði það, ásamt nokkrum öðrum hlutum, 13 stiga sigri í seinnihálfleik. Niðurstaðan var því eins stigs sigur sem er nóg.
Tölfræðin
Tölfræðilega var leikurinn, líkt og stigaskorið, virkilega jöfn. Fjölnir gerði þó aðeins betur og unnu líka. Annars má sjá nánari tölfræði hér




