spot_img
HomeFréttirHvernig er dagurinn í háskólaboltanum hjá Liberty?

Hvernig er dagurinn í háskólaboltanum hjá Liberty?

Elísabeth Ýr Ægisdóttir og Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir leikmenn Liberty í bandaríska háskólaboltanum munu í dag sýna frá degi sínum í skólanum í gegnum Instagram reikning ANSAathletics. Báðar héldu þær vestur um haf fyrir yfirstandandi tímabil úr bikarmeistaraliði Hauka í Subway deildinni, en þeim til aðstoðar við að komast á skólastyrk ytra voru ANSAathletics.

Hérna verður hægt að fylgjast með á Instagram

ANSAathletics stendur fyrir fjar-kynningarfundi næstkomandi laugardag, 10. febrúar klukkan 14:00 á Zoom fyrir þá sem hafa áhuga að kynna sér bandaríska háskólaumhverfið betur og möguleikana á námsstyrk. 16-19 ára íþróttaungmenni eru sérstaklega velkomin ásamt forráðamönnum. 



Hægt er að fá fundarboð með því að skrá sig hér

Fréttir
- Auglýsing -