HomeBónus deildinBónus deild karlaHverjir eru mikilvægustu leikmenn liðanna 12 fyrir lokasprett tímabilsins?

Hverjir eru mikilvægustu leikmenn liðanna 12 fyrir lokasprett tímabilsins?

Aukasendingin fékk vini þáttarins Heisa Högg og Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, hvaða leikmenn lið ættu að byggja lið sín í kringum og hvaða leikmenn ættu að leita sér að frekari áskorun í sumar. Þá eru einnig til umræðu landsleikir kvenna sem eru nú í dag úti gegn Serbíu og heima í Ólafssal þriðjudaginn 17. mars gegn Portúgal.

Þá er einnig til umræðu hver sé mikilvægasti leikmaður hvers liðs í Bónus deild karla fyrir lokasprettinn og úrslitakeppnina. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þá leikmenn sem vega þyngst í sínum liðum þegar horft er til framhaldsins í deild og úrslitakeppni. Listinn sýnir þá lykilmenn sem liðin reiða sig mest á til að ná árangri á lokasprettinum.

Kristófer er talinn mikilvægastur sínu liði, svo kemur Jacob Falko og svo Dwayne Lautier, en án þessara leikmanna telur Aukasendingin að lið þeirra ættu litla sem enga möguleika. Á hinum endanum er Darryl Morsell hjá ÍA, Haukur Helgi Briem Pálsson hjá Álftanesi og Rafail Lanaras hjá Þór, sem, þrátt fyrir að vera fínir leikmenn, ættu lið þeirra alveg möguleika í lokasprettinn án þeirra.

Hérna er upptakan á Spotify

Umræðuna um mikilvægustu leikmenn liðanna má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Kristófer Acox – Valur
  1. Valur – Kristófer Acox
  2. ÍR – Jacob Falko
  3. Njarðvík – Dwayne Lautier
  4. Stjarnan – Ægir Þór Steinarsson
  5. Grindavík – Jordan Semple
  6. Ármann – Bragi Guðmundsson
  7. Tindastóll – Adomas Drungilas
  8. KR – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson
  9. Keflavík – Remy Martin
  10. Þór – Rafail Lanaras
  11. Álftanes – Haukur Helgi Briem Pálsson
  12. ÍA – Darryl Morsell
Fréttir
- Auglýsing -