Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða leikmenn hafa hækkað virði sitt á tímabilinu, hvaða lið héldu bestu partýin síðustu helgi, landsleikina gegn Litháen og margt, margt fleira.
Þá er einnig farið yfir í upptökunni hver talin séu fimm dýrustu lið Bónus deildar kvenna. Listann má sjá hér fyrir neðan, en í efsta sæti listans er lið Keflavíkur sem er með valinn leikmann í hverri stöðu. Reyndar er ekki talinn mikill munur á milli þriggja efstu liðanna, þar sem Njarðvík og Grindavík eru talin fylgja fast á hæla Keflavíkur. Í fjórða sætinu er svo Valur og í fimmta sæti listans eru Íslandsmeistarar Hauka.
Umræðuna um dýrasta lið Bónus deildar kvenna má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Dýrustu leikmannahópar Bónus deildar kvenna
1. Keflavík
2. Njarðvík
3. Grindavík
4. Valur
5. Haukar




