HomeBónus deildinBónus deild karlaHver verður valinn besti leikmaður tímabilsins í Bónus deild karla?

Hver verður valinn besti leikmaður tímabilsins í Bónus deild karla?

Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.

Með Máté í þessum síðasta þætti eru sá raunverulegi Tómas Steindórsson og stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.

Meðal þess sem Run and Gun fer yfir hvernig þeir haldi að kapphlaupið um verðlaun fyrir verðmætasta leikmann Bónus deildar karla sé að fara.

Í efsta sætinu þessa stundina er leikmaður KR Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Þórir Guðmundur hefur verið stórkostlegur fyrir KR það sem af er tímabili, en í viðbót við að hafa leitt liðið til VÍS bikarmeistaratitils er hann að skila 17 stigum, 8 fráköstum og 9 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Næstir á eftir Þóri Guðmundi í röðinni eru Ægir Þór Steinarsson og Orri Gunnarsson úr liði Íslandsmeistara Stjörnunnar og Kári Jónsson úr Val, en umræðu um kapphlaupið er hægt að nálgast í síðasta þætti af Run & Gun.

Fréttir
- Auglýsing -