HomeBónus deildinBónus deild karlaHver var besti leikur úrslitakeppninnar?

Hver var besti leikur úrslitakeppninnar?

Strikerinn og Jónfrí mættu í nýjustu Aukasendinguna þar sem farið var yfir nýjasta körfuboltaslúðrið, leikmannabreytingar í Bónus og fyrstu deildunum, ásamt því að árlegu verðlaun þáttarins voru afhent fyrir allt það helsta á tímabilinu. Umræðuna er hægt að nálgast í þættinum sem er aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Lokaleikur Tindastóls og Grindavíkur var valinn leikur tímabilsins í úrslitakeppninni, en þar tryggði Grindavík sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 13 ár. Jeremy Pargo fór á kostum og skoraði 48 stig í leiknum, auk þess sem Grindavík fékk frábært framlag frá mörgum öðrum leikmönnum sínum til að landa sigrinum.

Leikir KR og Stjörnunnar voru nokkuð spennandi

Hér má sjá tilnefningarnar yfir bestu leiki úrslitakeppninnar:

  • Grindavík 88-97 Njarðvík – Slagsmálin
  • KR 115-118 Stjarnan – Tvíframlengt rugl
  • Valur 79-78 Keflavík – Tvær sigurkörfur
  • Stjarnan 105-103 Tindastóll – Skrefleikurinn
  • Tindastóll 102-109 Grindavík – Jeremy Pargo er Guð
  • Njarðvík 88-87 Tindastóll – Þrjár sigurkörfur
Fréttir
- Auglýsing -