Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru Mikael Máni þjálfari Breiðabliks og stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.
Meðal þess sem Run and Gun fer yfir er VÍS bikarvikan, landslagið í Bónus deild karla og margt fleira. Þá er farið sérstaklega yfir hvaða þjálfarar hafi mest verk að vinna fram að úrslitakeppni ef vel á að fara. Í efsta sæti þess lista eru Jóhann Þór og Helgi hjá Grindavík. Í öðru Arnar og Kalli hjá Tindastóli og því þriðja Hjalti og Ívar hjá Álftanesi.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá lista Run and Gun, en umræðuna er hægt að nálgast í hlaðvarpinu sem og upptöku af þættinum hér fyrir neðan.





