Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða leikmannahópar eru dýrastir í Bónus deild kvenna, hvaða atvinnumenn muni fá flestu símtölin í sumar, landsleikina gegn Litháen og margt, margt fleira.
Þá er einnig farið yfir hvaða lið það verði í Bónus deild karla sem haldi bestu partýin í þessu landsleikjahléi, en næsti leikur í deildinni er ekki fyrr en þann 6. mars.
Listann er hægt að sjá hér fyrir neðan, en efst á blaði þar eru Reykjavíkurfélögin Valur og KR, en þau hafa bæði átt ágætis gengi að fagna síðustu vikur og talið er að þar séu innanborðs menn sem kunna að skemmta sér. Þar fyrir neðan eru svo Grindavík, ÍR og Njarðvík, en þrátt fyrir að þau tvö síðastnefndu hafi kannski ekki verið að vinna marga leiki, sé þar til staðar rétta samsetningin af leikmönnum til þess að gera sér glaðan dag.
Umræðuna um hvaða lið haldi bestu liðspartýin í landsleikjahléinu má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Hvaða 5 lið halda bestu partýin í landsleikjahléinu?
1. KR
2. Valur
3. ÍR
4. Grindavík
5. Njarðvík





