spot_img
HomeFréttirHvaða lið fer í Dominos deildina með Hetti?

Hvaða lið fer í Dominos deildina með Hetti?

Úrslitakeppni 1. deildar karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Þrjá sigra þarf til þess að komast áfram í úrslitaeinvígið og mun sigurvegari úrslitakeppninnar hljóta sæti í Dominos deild karla að ári. Höttur varð deildarmeistari og er því sjálfkrafa farið upp um deild. 

 

Í Dalhúsum fær Fjölnir Hamar í heimsókn en liðin enduðu í öðru og fimmta sæti deildarinnar. Liðin hafa mæst þrisvar á tímabilinu og vann Fjölnir alla leikina ansi örugglega og því fyrir fram búist við sigri Fjölnis en Hamar hefur verið á uppleið uppá síðkastið.

 

Valsarar mæta svo Breiðablik í seinni leiknum. Þessi lið hafa einnig mæst þrisvar en hafa skipst á að vinna útileikina sín á milli. Valur vann tvo leiki í Kópavogi en blikar unnu eina leikinn í Hlíðarenda. Ef horft er til þess ættu blikar því að vinna leik kvöldsins en valsarar eru væntanlega ekki sammála því.

 

Nánar verður hitað upp fyrir úrslitakeppni 1. deildar í dag á Karfan.is. 

 

Leikir dagsins:

 

Fjölnir – Hamar kl 19:15 (í beinni á Fjölnir TV)

Valur – Breiðablik kl 19:30

 

 

Fréttir
- Auglýsing -