Aukasendingin fékk Strikerinn Árna Jó í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, leikina gegn Litháen, Bónus deild karla, hvaða leikmenn eru líklegastir til að verða valdir bestu leikmenn Bónus deildar karla, hverjir eru uppáhalds landsliðsmennirnir og margt, margt fleira.
5 líklegir til að hreppa MVP bikarinn
Þá er einnig farið yfir hvaða lið eigi erfiðustu leikina eftir á tímabilinu, en þegar deildin fer aftur af stað eru aðeins fjórar umferðir eftir. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni og baráttan á botninum er að ná hámarki þegar deildarkeppnin senn dregur til loka. Þegar litið er á leikjaplan liðanna er ljóst að sum eiga mun erfiðari leið fyrir höndum en önnur.
Keflavík og KR standa frammi fyrir krefjandi verkefnum með marga útileiki eða viðureignir gegn sterkum andstæðingum, á meðan lið eins og Álftanes og Þór Þorlákshöfn njóta góðs af því að spila meira á heimavelli. Fyrir liðin í neðri hlutanum, eins og Ármann, ÍA eða Þór er hver leikur upp á líf og dauða, þar sem þau oftar en ekki mæta liðum sem eru nokkur eða öll fyrir ofan þau í deildinni.
Aukasendingin setti saman reikniformúlu sem virkar þannig að sæti andstæðinga liðanna eru tekin saman í tölu og er liðunum svo raðað í sæti eitt til tólf eftir þeirri tölu.

Niðurstöður Aukasendingarinnar sýna að Ármann blasir við léttasta prógramminu það sem eftir lifir tímabils, ef miðað er við meðalstöðu þeirra liða sem eftir eru á dagskránni. Fast á hæla þeirra fylgja Njarðvík og Stjarnan, en leikjaplan þessara liða einkennist af fleiri viðureignum gegn liðum úr neðri hluta deildarinnar fremur en þeim sem sitja á toppnum.
Erfiðustu leikina eiga Álftanes eftir, en þeir mæta tveimur liðum úr efstu fjórum sætum deildarinnar og svo Keflavík og ÍR. Næstir á eftir þeim koma KR sem eiga einnig eftir tvö lið úr efsta lagi deildarinnar.
Umræðuna um hvaða lið eigi erfiðustu leikina eftir má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.
Erfiðustu síðustu fjórar umferðir Bónus deildar karla 2025-26
| # | Lið | Heimaleikir | Útileikir |
| 1 | Álftanes | Keflavík, ÍR og Stjarnan | Tindastóll |
| 2 | KR | Keflavík og Tindastóll | Valur og ÍR |
| 3 | ÍA | Tindastóll og Ármann | ÍR og Stjarnan |
| 4 | Þór Þ. | Stjarnan, Ármann og Njarðvík | Grindavík |
| 5 | Grindavík | Ármann og Þór Þ. | Tindastóll og Stjarnan |
| 6 | Keflavík | Valur | Álftanes, KR og Njarðvík |
| 7 | Tindastóll | Grindavík og Álftanes | ÍA og KR |
| 8 | Valur | KR og ÍR | Njarðvík og Keflavík |
| 9 | ÍR | ÍA og KR | Álftanes og Valur |
| 10 | Stjarnan | Þór Þ. og ÍA | Grindavík og Álftanes |
| 11 | Njarðvík | Valur og Keflavík | Ármann og Þór Þ. |
| 12 | Ármann | Grindavík | Njarðvík, Þór Þ. og ÍA |





