HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða félag hefur oftast sópað andstæðing sínum í lokaúrslitum?

Hvaða félag hefur oftast sópað andstæðing sínum í lokaúrslitum?

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Körfunnar spá þeir Jónfrí og Árni Jó í þá sviðsmynd að úrslitakeppni Bónus deildarinnar gæti klárast strax í þessari viku. Ef Njarðvík leggur Hauka og Grindavík fylgir því eftir með sigri á Tindastóli á morgun er tímabilið hreinlega úti.

Sérstaklega er rýnt í frábært gengi Grindvíkinga og þá þætti sem skila þeim árangri, auk þess sem farið er yfir hápunkta og umdeild mál úr síðasta leik liðsins í Síkinu. Þátturinn, sem er á öllum hlaðvarpsveitum, er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Hérna er Aukasendingin á Spotify

Í ljósi þess að sópurinn gæti farið á loft í úrslitunum var skoðað hversu oft lið hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn án þess að tapa leik í lokaúrslitunum. Það er langt um liðið síðan þetta gerðist síðast karlamegin, eða allt frá árinu 2008 þegar Keflavík vann Snæfell, en kvennalið Keflavíkur leysti það verkefni svo nýlega sem árið 2024 gegn Njarðvík. Þegar miðað er við þá reglu að vinna þurfi þrjá leiki í einvígi hefur það gerst sjö sinnum hjá körlunum en sextán sinnum hjá konunum að titillinn hafi unnist með hreinum sóp.

Hér að neðan má sjá hvaða félög hafa oftast sópað andstæðingum sínum í úrslitaeinvígi (miðað við þrjá sigurleiki):

Topplisti yfir hreinan sóp í úrslitum

• Kvennalið Keflavíkur: 7 sinnum

• Karlalið Keflavíkur: 4 sinnum

• Kvennalið KR: 2 sinnum

• Kvennalið Snæfells: 2 sinnum

• Karlalið Njarðvíkur: 2 sinnum

• Kvennalið Vals: 2 sinnum

Fréttir
- Auglýsing -