spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða atvinnumenn fá flest símtöl í sumar?

Hvaða atvinnumenn fá flest símtöl í sumar?

Aukasendingin fékk Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, Bónus deild karla, hvaða leikmannahópar eru dýrastir í Bónus deild kvenna, hvaða lið héldu bestu partýin síðustu helgi, landsleikina gegn Litháen og margt, margt fleira.

Þá er einnig farið yfir í upptökunni hvaða fimm atvinnumenn munu fá flest símtöl frá félögum eftir að tímabilinu lýkur í sumar. Þá er átt við þá erlendu atvinnumenn sem hafa hækkað virði sitt hvað mest með góðum leik á yfirstandandi tímabili.

Hérna er upptakan á Spotify

Umræðuna um hvaða leikmenn hafa hækkað virði sitt má nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Jacob Falko leikmaður ÍR

Þeir fimm leikmenn sem fá flest símtöl í sumar frá öðrum félögum

1. Gojko Zudzum – ÍA

2. Jordan Semple – Grindavík

3. Jacob Falko – ÍR

4. Dimitrios Klonaras – ÍR

5. Rafail Lanaras – Þór

Fréttir
- Auglýsing -