Þrír leikir fara fram í Dominos deild kvenna í dag. Mikið hefur verið um óvænt úrslit það sem af er móti, því er ekki ólíklegt að við höldum áfram að sjá þau í dag. Allir eiga leikirnir möguleika á að vera spennandi fram á síðustu mínútu.
Bæði þarf Snæfell að vinna Stjörnuna til þess að halda í við topplið Keflavíkur í deildinni, en Stjarnan getur verið skeinuhætt heima í Ásgarði og ætlar sér líklega að vera, allavegana, í fjórða sætinu þegar að deildarkeppninni lýkur í vor. Því mikilvægt fyrir Stjörnuna að ná í sigur og þá, að öllum líkindum vera eitt í 4. sæti deildarinnar eftir þessa umferðina.
Spennandi verður að sjá viðureign grannana Keflavíkur og Njarðvíkur. Keflavík efstar í deildinni sem stendur á meðan að Njarðvík er í 4. sætinu. Kannski þau tvö lið sem hafa komið mest á óvart í vetur. Gaman verður að sjá hvaða svör Keflavík verður með við besta leikmanni deildarinnar Carmen Tyson-Thomas, en hún spilaði með Keflavík áður en að hún flutti krafta sína yfir Flugvallaveginn til Njarðvíkur fyrir þar síðasta tímabil.
Þá ætti leikur Grindavíkur og Vals einnig að vera skemmtilegur. Bæði eru liðin gríðarlega vel mönnuð. en segja mætti að þau væru þau lið sem valdið hefðu mestum vonbrigðum í byrjun móts. Liðin eru í 6. og 7. sæti deildarinnar.
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna
Grindavík Valur – kl. 16:30
Keflavík Njarðvík – kl. 16:30
Stjarnan Snæfell – kl. 16:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport




