spot_img
HomeFréttirHulda eftir leikinn gegn Njarðvík "Höfum klárlega stækkað sem lið í vetur"

Hulda eftir leikinn gegn Njarðvík “Höfum klárlega stækkað sem lið í vetur”

Njarðvík lagði heimakonur í Grindavík í kvöld í 23. umferð Subway deildar kvenna, 72-87. Eftir leikinn er Njarðvík í 4. sæti deildarinnar með 24 stig á meðan að Grindavík er sæti neðar í því 5. með 18 stig.

Hérna er meira um leikinn

Hulda Björk Ólafsdóttir leikmaður Grindavíkur lék vel fyrir lið sitt, og þessi unga körfuboltakona er afar efnileg og getur án efa náð langt í greininni. Karfan ræddi við hana eftir leik.

“Við lékum ekki nægilega vel í vörninni á lokakaflanum og áttum síðan í erfiðelikum með að finna opin skot. Þetta var svolítið erfitt hjá okkur í fjórða leikhluta og leikur okkar leystist eiginlega upp í vitleysu í restina. Við komum hins vegar í leikinn með það að markmiði að vinna; höfðum trú á því að við gætum það, en það varð því miður ekki niðurstaðan í kvöld.

Við höfum klárlega stækkað sem lið í vetur – reynum alltaf að bæta okkur með hverjum leik; þessi reynsla nú mun hjálpa liðinu á næsta tímabili, það er engin spurning. Ég er bjartsýn á framtíðina, við eigum góða leikmenn og líka efnilega leikmenn sem eru að koma upp og ég er viss um að við munum gera vel á næstu árum.”

Fréttir
- Auglýsing -