spot_img
HomeFréttirHrunamenn og Hamar HSK meistarar í 10. flokki

Hrunamenn og Hamar HSK meistarar í 10. flokki

Í apríllok var haldið HSK mót í 10.flokk stráka og stelpna í Hveragerði. Hamar, Hrunamenn, Hamar B og Þór Þorlákshöfn tóku þátt í þessu móti en Hamar B er sameiginlegt lið stúlkna frá Hamri og Hrunamönnum.

Þetta var síðasta körfuboltamót vetrarins í þessum flokki þannig ekki vantaði keppnina þó svo að mótið sjálft sé fyrst og fremst upp á gamanið gert. 

Hrunamenn urðu HSK meistarar í 10.flokki stúlkna eftir að hafa unnið leik sinn á móti Hamri nokkuð þægilega. Hinsvegar var mun meiri spenna í leik Hrunamanna og Hamars B þar sem lokastaðan var 30-24 Hrunamönnum í vil.

Hamar varð HSK meistari 10.flokks drengja eftir að sigra Hrunamenn og síðan Þór Þorlákshöfn í algjörum úrslitaleik sem endaði með 61-57 sigri Hamars í tvíframlengdum leik þar sem spennan var mikil og leikmenn sýndu glæsilega takta undir mikilli pressu.

Mótið endaði síðan á því að grillaðar voru pylsur í sumarveðrinu og fóru allir heim með bros á vör eftir skemmtilegt mót og skemmtilegan körfubolta vetur.


 

Fréttir
- Auglýsing -