Þórsstúlkur jöfnuðu í kvöld rimmuna við Blika, 61-70, um laust sæti í Dominosdeild kvenna að ári. Tvo sigra þarf til þess að hreppa hnossið. Staðan er því 1-1 og hafa báðir leikirnir unnist á útivelli. Hreinn úrslitaleikur milli þessara jöfnu liða mun því fara fram nyrðra föstudaginn 31. mars. Frábær umgjörð var á leiknum í Smáranum í kvöld og minnti hún um margt á gamla og góða tíma á þeim iðjagræna. Hvað um það.
Í hnotskurn
Leikurinn var hnífjafn og spennandi í fyrri hálfleik. Það sem maður hjó þó eftir var að gestirnir voru einkar lunknir við að keyra í bakið á Blikastúlkum aukinheldur sem sókn heimastúlkna virkaði oft á tíðum ráðleysisleg og endaði með hálfgerðu neyðarskoti.
Þegar dómaraþrenndin flautaði inn þriðja leikhluta var staðan 37-35. Í þeim hluta náðu Þórsstúlkur frábærri rispu sem lagði grunninn að sigri þeirra í leiknum. Blikastúlkur reyndu allt hvað þær gátu til að komast aftur inn í leikinn í 4. Leikhluta en munurinn var einfaldlega of mikill og svekkjandi tap staðreynd, 61-70.
Af hverju vann Þór?
Þórsstúlkur virðast í fantaformi og hafa hvorki nýtt síðastliðið sumar í að hringsóla í ókeypis strætisvagnaferðum nyrðra né að hanga á Sólbaðsstofu Akureyrar. Öðru nær. Þær hafa augljóslega haldið sig í “gyminu” og eru að uppskera eftir því. Á heimastúlkum mátti merkja örlítil þreytumerki. Hinsvegar þegar í úrslitaleik er komið – líkt og verður á föstudaginn næstkomandi – mun öngvin muna eftir smávægilegum meiðslum, þreytu, leiðinlegum maka, of háum yfirdrætti eða húsnæðisvanda ungs fólks heldur gefa allt í leikinn og hjálpa liði sínu til að vera á meðal þeirra bestu á næsta tímabili.
Hvað gerist næst?
Það er auðvelt að sjá hverjar voru að gera góða hluti í leiknum í tölfræðinni. Hinsvegar má undirritaður vart vera að því að hripa meira niður. Hann þarf að drifa sig inn á heimasíðu Flugfélagsins og finna ferð norður á föstudaginn sem kostar ekki jafnmikið og 2ja vikna sólarlandaferð fyrir 2 fullorðna með 2 tvö börn (eiga allir tvö börn???) Góðar stundir – áfram körfubolti!
Umfjöllun / Gylfi Gröndal
Myndir / Bjarni Antonsson




