22:46
{mosimage}
(Hreggviður Magnússon sækir að Helga Viggóssyni)
Ekkert lát er á sigurgöngu ÍR um þessar mundir en í kvöld tryggðu þeir sig inn í 8-liða úrslit Subwaybikars karla með 69-56 sigri á Tindastól í Seljaskóla. Hreggviður Magnússon gerði 31 stig fyrir ÍR í kvöld en verulega hitnaði undir ,,Reggie“ eins og hann er jafnan kallaður og gerði hann t.d. fyrstu 7 stig ÍR í síðari hálfleik. Gestirnir frá Sauðárkróki voru framan af með frumkvæðið en þeir léku án Darrels Flake í kvöld og munaði um minna. Flake fór í hnéaðgerð í dag og verður frá næsta mánuðinn.
Félagarnir Friðrik Hreinsson og Óli Barðdal voru að nýju komnir með KS merkið á bringuna og fékkst ekki betur séð en að kapparnir verði fljótir að finna taktinn með Stólunum. Ómar Sævarsson bauð þó upp á tilþrif leiksins og það í fyrsta leikhluta þegar hann kom keyrandi inn miðjuna, fékk góða sendingu á ferðinni, vippaði sér upp og tróð með tilþrifum og staðan 12-10 fyrir ÍR. Stólarnir leiddu þó eftir fyrsta leikhluta 16-18.
Óhætt er að segja að Allan Fall hafi verið nokkuð utanveltu í kvöld. Kappinn ku vera á leiðinni til Sviss en miðað við frammistöðuna í leiknum var hann hreinlega dottinn í Tobleronið nú þegar. Fall brenndi af öllum 10 skotum sínum í leiknum og var með -1 í framlagseinkunn. Andleg fjarvera Fall gerði gestunum erfitt fyrir og ÍR-ingar pressuðu miskunnarlaust á bakverði Tindastóls.
Helgi Viggósson er þekktur baráttuhundur og lét ekki sitt eftir liggja fyrir norðanmenn í kvöld. Hann hristi vel upp í ÍR-ingum og frákastaði vel. Tindastóll náði 8 stiga forystu, 19-27, en ÍR-ingar voru fljótir að ná áttum og með þrist frá Hreggviði var staðan snöggtum orðin 26-29. Varnarleikurinn var flottur hjá heimamönnum í kvöld og var gaman að sjá Davíð Fritzson kasta sér á eftir öllu sem laust gat talist í húsinu.
Gestirnir leiddu í hálfleik 31-32 þar sem Helgi Viggósson var kominn með 14 stig fyrir Stólana og Svavar Atli Birgisson 8. Hjá ÍR var Hreggviður með 10 stig og Steinar Arason 8.
{mosimage}
(Ómar klikkaði ekki á tvennunni í kvöld, 11 stig og 14 fráköst)
Hreggviður fór mikinn í síðari hálfleik í kvöld og kom ÍR í 38-34 með því að skora 7 fyrstu stig heimamanna í síðari hálfleik. Tindastólsmenn áttu bágt með að hafa gætur á Hreggviði sem hitti bæði vel fyrir utan og lék menn grátt á blokkinni. Baráttan í síðari hálfleik var mögnuð en fyrir vikið varð lítið úr sóknarleik beggja liða. Ísak Einarsson fór fyrir Tindastól í seinni hálfleik og átti fína spretti en gestirnir voru í mestu vandræðum með leikstjórnendastöðuna þar sem Fall var ekki með hugann við leikinn.
ÍR náði forystunni í þriðja leikhluta og leiddu að honum loknum 50-45. Heimamenn höfðu frumkvæðið í fjórða leikhluta en gestirnir voru aldrei langt undan. Maður leiksins, Hreggviður Magnússon, gerði svo út um leikinn þegar rétt rúm mínúta var til leiksloka. Hreggviður sökkti þá þriggja stiga skoti og breytti stöðunni í 68-54 og það reyndist gestunum ofviða og lokatölur eins og fyrr greinir 69-56.
Hreggviður var yfirburðamaður á vellinum í kvöld með 31 stig og 7 fráköst. Næstir voru þeir Steinar Arason og Ómar Sævarsson báðir með 11 stig og Ómar var auk þess með 14 fráköst en honum leiðist lítt að rífa þau niður.
Hjá gestunum var Helgi Viggósson atkvæðamestur með 18 stig, 13 fráköst og 2 stoðsendingar en næstur var Ísak Einarsson með 17 stig og 7 fráköst.
Tölfræði leiksins:
http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMiZvX2xlYWc9MTkmZnVzZWFjdGlvbj1nYW1lcy5tYWluJmdfaWQ9NDM2
[email protected]
{mosimage}
{mosimage}



