Hrannar Hólm hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá danska körfuboltasambandinu og með ráðningu Hrannars mun starfið breytast og stór hluti þess snúast um að finna og efla efnilegustu körfuboltamenn og konur Danmerkur. Þetta kemur fram á heimasíðu SISU og visir.is greinir frá.
Hrannar Hólm hefur verið að gera frábæra hluti með kvennalið SISU síðustu ár enda hafa stelpurnar hans unnið tvöfalt undanfarin tvö tímabil og eru á leiðinni í Evrópukeppnina í vetur. Hrannar mun klára þetta tímabil með SISU en hann einbeitir sér svo að fullu að nýja starfinu.




