22:03
{mosimage}
Hrafn Kristjánsson fyrrum þjálfari Þórs á Akureyri skrifaði undir samning í kvöld við Breiðablik og mun hann þjálfa meistaraflokk félagsins auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka og þjálfa nokkra yngri flokka.
Hrafn hefur undanfarin 5 ár stýrt Þór, bæði í 1. deild og Iceland Express deildinni en áður stjórnaði hann KFÍ á Ísafirði. Hann er uppalinn Vesturbæingur og hóf ferilinn með KR en hefur að auki leiki með KFÍ og Hamri.
Mynd: www.breidablik.is