"Ég er bara hrikalega stoltur af þessum stelpum eftir þenna leik. Við spilum hérna án okkar helsta skorara og kaninn hjá okkur meiðist snemma í fyrri hálfleik og við erum inní þessum leik alveg til enda." sagði Hrafn Kristjánsson eftir leik KR og Keflavíkur í dag.
"Þetta er byrjunin á einvíginu og nú er bara að fara yfir hvað virkar og hvað ekki og ég get ekki annað en verið bara vongóður eftir þennan leik. Það voru nokkrir staðir sem við vildum ekki að Jackie hjá þeim fengi boltann. Hún var að skorar nokkrar körfur á "póstinum" þar sem við vorum að spila fína maður á mann vörn. Þannig að við ætlum að laga það eitthvað hjá okkur. Hver áherslan verður á fyrir næsta leik held ég innan okkar herbúða." sagði Hrafn Kristjánsson eftir leik dagsins.





