Heilsuskóli Keilis heldur 2ja daga námskeið í hraðaþjálfun 14.-15. apríl. Námskeiðið er sérsniðið að þjálfurum sem sinna íþróttaþjálfun, styrktar- og ástandsþjálfun. Einnig er námskeiðið opið metnaðarfullum íþróttamönnum sem vilja ná lengra í sinni íþrótt.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er enginn annar en Martin Rooney, sjúkraþjálfari M.Sc. og framkvæmdastjóri Parisi Speed School. Rooney mun kenna hraðaþjálfunarkerfi sem hann hefur þróað og notað á yfir 500.000 íþróttamenn á hæsta getustigi í ýmiss konar íþróttagreinum. Þjálfarar ólympíukeppenda og afreksíþróttaliða sækja mikið í hraðaþjálfunarkerfi Rooney fyrir sína iðkendur en kerfið má auðveldlega sníða að bæði yngri flokka þjálfun og afreksþjálfun.
Mikil aðsókn er í námskeiðið en veittur er 25% hópafsláttur.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér: http://www.keilir.net/heilsa-og-uppeldi/namskeid/martin-rooney



