Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Houston Rockets gerðu góða ferð á austurströndina og lönduðu 102-108 sigri í TD Garden, heimavelli Boston Celtics. Með sigrinum var á enda fimm leikja taphrina Rockets.
Aaron Brooks var á ný í byrjunarliði Rockets og stóð vel fyrir sínu með 24 stig og 5 stoðsendingar. Hjá Celtics, sem léku án Kevins Garnett, var Ray Allen stigahæstur með 19 stig ásamt Marquis Daniels sem kom með 19 stig af bekknum á 24 mínútum.
Önnur úrslit næturinnar:
Charlotte 96-82 Memphis
Stephen Jackson með 27 stig og 6 fráköst hjá Bobcats. Hjá Memphis var Zach Randolph með 15 stig og 15 fráköst.
Chicago 95-82 Detroit
Derrick Rose með 29 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst hjá Bulls. Hjá Pistons var Tayshaun Prince með 15 stig.
Mynd/ Aaron Brooks setti 24 stig fyrir Rockets gegn Celtics í nótt.




