HomeFréttirHöttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés...

Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór – Andrés í góðum gír

Einn leikur fór fram í 1. deild karla í gærkvöldi þegar Þór Akureyri lagði land undir fót og heimsótti Hött á Egilsstöðum. Lokatölur reyndust 82-75 Hetti í vil sem með sigrinum tylltu sér í 4. sæti deildarinnar með 16 stig en Þór hefur 10 stig í 7. sæti.
 
 
Hart var barist fyrir austan í gær en heimamenn í Hetti höfðu frumkvæðið þar sem Andrés Kristleifsson átti stórleik. Andrés lék veikur í gær en það aftraði honum ekki frá því að skora 26 stig á Þórsara og taka 7 fráköst. Hjá gestunum í Þór var Eric James Palm með 31 stig.
 
Mynd/ Gunnar GunnarssonFrá viðureign Hattar og Þórs í gærkvöldi.
 
Staðan í 1. deild karla
Nr. Lið L U T S Stig/Fen Sti m/Fen m Heima s/t Úti s/t Stig heima s/f Stig úti s/f Síðustu 5 Síð 10 Form liðs Heima í röð Úti í röð JL
1.  KFÍ 15 14 1 28 1378/1118 91.9/74.5 7/0 7/1 84.0/65.7 98.8/82.3 4/1 9/1 4 7 2 2/1
2.  Skallagrímur 13 10 3 20 1156/1080 88.9/83.1 4/2 6/1 88.0/84.8 89.7/81.6 4/1 7/3 4 2 4 1/0
3.  (1) Breiðablik 14 8 6 16 1217/1185 86.9/84.6 6/2 2/4 89.4/82.3 83.7/87.8 2/3 5/5 1 1 -4 2/1
4.  (1) Höttur 14 8 6 16 1150/1125 82.1/80.4 4/3 4/3 83.1/79.3 81.1/81.4 3/2 5/5 3 2 1 2/2
5.  (-2) Hamar 13 8
Fréttir
- Auglýsing -