Höttur þurfti á sigri að halda til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild karla og þar með sæti í Dominos deild karla að ári. Andstæðingur Hattar var Ármann en þeir hafa enn ekki sigrað leik og því búist við öruggum sigri gestanna frá Egilsstöðum. Það varð raunin þegar á leið leik en Ármann tókst að gefa Hetti leik í nærri þrjá leikhluta.
Gangur leiksins:
Þrátt fyrir að Höttur hafi verið sterkari aðilinn á upphafsmínútunum tókst Ármanni að komast aftur inní leikinn og leiddi 25-23 eftir fyrsta leikhluta. Munurinn á liðunum var mjög lítill allan fyrri hálfleik en Hetti tókst aðeins að skríða framfyrir Ármann áður en flautað var til hálfleiks.
Seinni hálfleikur var svo eign Hattar. Gæðin og þolið var mun meira hjá Egilsstaðabúum sem silgdu nokkuð öruggum sigri að lokum. Lokastaðan 67-99 fyrir Hetti en Ármann má eiga það að flestir leikmenn liðsins reyndu allt fram á lokaflautið og létu Hött hafa fyrir öllu.
Hetjan
Þrennu-Moss var að vanda öflugur, endaði með 15 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar á 28 mínútum, Moss stjórnaði sóknarleik liðsins og var engin í liði Ármanns sem réð almennilega við hann. Ragnar Gerald fékk einnig skotleyfi í kvöld og var virkilega öflugur auk þess sem Mirko Virijevic var mikil ógn inní teig sóknarlega auk þess sem andstæðingurinn þorði ekki að körfunni þegar Mirko var í vörninni.
Kjarninn
Ármann er enn að leita af sigri þegar tveir leikir eru eftir af tímabilinu, liðið vann einungis þrjá leiki í fyrra og þvi lítil sigurhefð þessi dægrin. Satt best að segja er lítil jákvæð ára yfir liðinu, eftir að hafa sett saman flottan fyrri hálfleik misstu leikmenn gjörsamlega hausinn í þeim seinni. Öll orkan fór í að rífast við mjög fína dómara leiksins og klappaði þjálfari liðsins m.a. fyrir leikmanni sínum sem sýndi óíþróttamannslega hegðun og sagði honum að halda áfram. Það er auðvelt að missa sjónar af gleðinni þegar illa gengur en það hlýtur að vera lágmarkskrafa að bera virðingu fyrir andstæðingnum og leiknum. Ármann á íslandsmeistaratitil að baki og það væri gaman ef þetta gamla stórveldi í körfuboltanum setti nú alvöru kraft í starfið. Að því sögðu geta leikmenn heilt yfir gengið frá leiknum með bakið beint og það verður ekki tekið af þeim að þeir lögðu sig fram en orkan hefði mátt vera meira á íþróttinni fallegu.
Aðalsaga kvöldsins er samt sem áður að Höttur er aftur komið í úrvalsdeild eftir eingöngu árs fjarveru. Liðið hefur verið óumdeilanlega það besta í deildinni vetur og er vel að þessu komið. Jafnvægið í liðinu er gott núna, allir eru með sín hlutverk á hreinu og sinna sínu. Höttur og hinn stórskemmtilegri Viðar Örn þjálfari liðsins gáfu Dominos deildinni heldur betur lit á síðasta tímabili og fagnaðarefni fyrir körfuboltaáhugamenn að liðið sé mætt aftur í deild þeirra bestu. Félagið þarf að leggja allt í að fá 1-2 gæðaleikmenn til liðsins sem passa inní samfélagið og þá er liðið til alls líklegt. Stemmningin er góð í liðinu og metnaðurinn greinilegur, margir leikmenn eru uppaldir á Egilsstöðum og var fögnuðurinn ósvikinn eftir leik eins og sjá má hér að neðan:
Viðtal við Viðar Örn þjálfara Hattar eftir leik
Viðtal við Ragnar Gerald leikmann Hattar eftir leik




