Hattarmenn féllu úr úrslitakeppni 1. deildar á síðustu leiktíð í fyrstu umferð þegar þeir mættu Skallagrímsmönnum. Í yfirferð okkar núna fyrir 1. deildina náðum við í Viðar Örn Hafsteinsson þjálfara Hattar sem segist hafa á að skipa fullt af ungum og góðum strákum sem á komandi leiktíð fá það hlutverk að leiða liðið.
Hvernig hefur sumarið gengið?
Sumarið hefur verið fínt hjá okkur, strákarnir hafa verið duglegir að æfa. Ég bind miklar vonir við ungu pjakkana mína sem eru alveg að verða karlmenn eftir að hafa verið duglegir í ,,gymminu" í sumar.
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Það verða smá breytingar hjá okkur, við tökum inn nýjan kana í stað þessara tveggja sem voru í fyrra og svo hefur Bjarki Odds sá miklu öðlingur farið norður og mun þjálfa Þór Ak. Vont að missa hann því hann er algjör gullmoli í liði. Síðan erum við að reyna að bæta við okkur einum leikmanni en það kemur bara í ljós hvort það gengur upp.
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4-1 reglunni?
Þetta leggst bara vel í mig, það er ekkert annað í boði. Ég er með fullt af ungum, góðum strákum sem fá það hlutverk að leiða liðið.
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Það er kannski erfitt að segja það núna, ég held að þetta geti orðið 5-6 lið sem berjast um sæti í efstu deild. Höttur, Hamar, Haukar, Valur, ÍA og Blikar verða í baráttunni en maður veit aldrei hvað gerist.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Ég tel okkar möguleika bara góða, við ætlum okkur að gera betur ár frá ári bæði innan og utan vallar. Við höfum allir verið duglegir að æfa í sumar og erum ekki að því til að vera bara með, við ætlum okkur að fara eins og langt og við mögulega komumst. Styrkleiki okkar er að hópurinn er ungur, graður, hæfileikaríkur og til í að leggja allt á sig til að ná árangri.
Höttur hefur leik í 1. deild karla þann 11. október á heimavelli þegar Bjarki Ármann Oddsson þjálfari Þórsara og fyrrum liðsmaður Hattar mætir með Akureyringa í heimsókn.





