Guðni Heiðar Valentínusson og félagar í Bakken Bears hafa tapað sínum fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Tapleikurinn kom þann 20. janúar síðastliðinn þegar Bakken fékk Hörsholm 79ers í heimsókn.
Lokatölur í leiknum voru 69-78 Hörsholm í vil þar sem Guðni lék í rúmar 3 mínútur en náði ekki að komast á blað.
Axel Kárason og Værlöse BBK eru í 7. sæti deildarinnar með 14 stig og unnu góðan heimasigur síðasta laugardag gegn Aalborg Vikings. Axel var ekki í byrjunarliðinu en lék í 25 mínútur, skoraði 13 stig, gaf 2 stoðsendingar og tók 2 fráköst.
Sigurður Þór Einarsson og Horsens IC máttu svo þola tap á heimavelli síðasta laugardag þegar liðið heimsótti Hörsholm. Rétt eins og Guðni og Bakken máttu Sigurður og félagar játa sig sigraða, lokatölur 84-76 Hörsholm í vil. Sigurður lék í 11 mínútur í leiknum en náði ekki að skora.
Staðan í dönsku úrvalsdeildinni:




