Það var boðið upp á alvöru úrslitakeppnisstemningu í N1-höllinni að Hlíðarenda þegar Valur og Keflavík mættust í fyrsta leik átta liða úrslita Bónus deildar karla.
Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik, en eins og staðan er í úrslitakeppninni þarf að vinna þrjá leiki til að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Eftir æsilegan lokakafla voru það Keflvíkingar sem fögnuðu dýrmætum 75-78 sigri og leiða því einvígið 1-0.
Karfan spjallaði við Hilmar Pétursson leikmann Keflavíkur eftir leik í N1 höllinni.




