
Páll Axel með stórleik í fyrstu umferð mótsins
Það var mikil barátta strax í upphafi leiks Grindvíkinga og Stjörnunar. Greinilegt var að gestirnir ætluðu sér að láta allar spar sem vind um eyru þjóta og áttu í fullu tréi við heimamenn og leiddu með einu stigi efti r fyrsta fjórðung 24-25. Grindvíkingar voru hinsvegar fljótir að komast í forystu í öðrum fjórðung og héldu því forskoti sem voru þetta frá 3 og uppí 5 stig til hálfleiks en náðu aldrei almennilega að hrista gestina af sér. 48-42 var hálfleiksstaða leiksins.
Heimamenn komu dýrvitlausir til leiks í seinni hálfleik og náðu að byggja upp góða forystu. Fljótlega voru 12 stig sem skildu liðin af og svo virtist sem Grindvíkingar væru að fara sigla lignan sjó, en svo var ekki. Stjörnumenn neituðu að gefast upp og héldu vel í við lið heimamanna. Staðan var 71-65 fyrir síðasta fjórðung og gestirnir vissulega enn inní leiknum þó svo að Grindvíkingar höfðu frumkvæðið. Páll Axel Vilbergsson hafði fram að þessu verið allt í öllu hjá Grindvíkingum og komin með 29 stig og 11 fráköst fyrir síðasta fjórðung.
Grindvíkingar skoruðu fyrstu 6 stig síðasta fjórðungs og komust þar í þægilega 12 stiga forystu. EN sem fyrr þá gáfust gestirnir ekki upp og með seiglu héldu þeir í við heimamenn. Loka mínútur leiksins voru æsispennandi þar sem Grindvíkingar höfðu þriggja stiga forskot en Justin Shouse setti niður þrist og jafnaði leikinn þegar um 15 sekúndur voru eftir. Grindvíkingar fóru í sókn en klikkuðu á skoti en Brenton Birmingham náði frákastinu og setti niður 2 stig þegar 4 sekúndur voru eftir af leiknum. Stjörnumenn voru snöggir að taka boltann inn og brutu klaufalega á Justin Shouse sem fór á línuna. Svellkaldur setti Shouse bæði vítinn niður og því þurfti að framlengja.
Grindvíkingar voru ívið sterkari í framlengingunni og kláruðu dæmið en þó naumt, eða með minnsta mun 110-109. Páll Axel Vilbergsson átti stórleik með 39 stig og 15 fráköst en næstur honum var Brenton Birmingham með 18 stig. Hjá Stjörnunni var Justin Shouse í sérflokki með hvorki meira né minna en 47 stig eða tæplega helming stiga Stjörnumanna.






