Heimamenn í Tindastól höfðu betur gegn baráttuglöðum Haukum í erfiðum leik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.
Fyrsti fjórðungur var jafn og skemmtilegur og eftir hann leiddu gestirnir með einu stigi eftir að Finnur setti þrist í lokin. Haukar voru að hitta ágætlega en hinumegin var það einkum Hester sem sá um sóknarleikinn. Tindastóll var ívið sterkari aðilinn í öðrum fjórðung og leiddu með sex stigum í hálfleik 43-37. Ekki mikið skorað í Síkinu sem eru yfirleitt góðar fréttir fyrir heimamenn en sóknarleikur þeirra var þó ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt því hvorugt liðið virtist geta keypt körfu. Einu stigin eftir tæplega þriggja mínútna leik voru tvö víti frá Haukum. En þegar fyrsta karfan loksins kom þá var hún rosaleg, Hester æddi upp völlinn og hamraði niður troðslu í grímuna á Finn Atla. Þetta kveikti í Síkinu og sömuleiðis þegar fyrirliðinn Helgi Rafn kastaði sér yfir varamannabekkinn til að bjarga bolta. Stemningin var öll heimamanna og þeir komust einum 11 stigum yfir um tíma en gamla brýnið Kristinn J sá til þess að munurinn var 8 stig fyrir lokafjórðunginn með galopnum þrist í lokin.
Með gríðarlegri baráttu náðu Haukar að naga þennan mun niður í lokahlutanum og gott betur en það því þegar 2:25 voru eftir voru þeir allt í einu komnir 6 stigum yfir eftir þrist frá Finn. Martin tók leikhlé og Pétur Rúnar svaraði með þrist eftir það og Caird jafnaði svo með öðrum þrist eftir að Finnur hafði misst boltann. Haukur kom muninum aftur í 3 stig en Caird svaraði um hæl og jafnaði í 76-76 og allt á suðupunkti. Svo fór að hvorugt liðið náði að bæta við á lokamínútunni og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni voru heimamenn svo sterkari og munaði þar miklu um að fyrirliðinn hitti úr opnum skotum sem hann hafði lítið gert af fram að því og ekki síður um rosalegan þrist frá Pétri Rúnari þegar skotklukkan var að renna út.
Pétur, Hester og Caird voru öflugastir heimamanna en hjá gestunum átti Wright góðan leik með 24 stig og 14 fráköst. Miklu munaði að Haukar fengu aðeins 5 stig af bekknum í leiknum en Stólar 21 og þar af var Björgvin með 11.
Umfjöllun, myndir / Hjalti Árna




