spot_img
HomeFréttirHörður og Amin stórkostlegir í sigri Keflavíkur

Hörður og Amin stórkostlegir í sigri Keflavíkur

 

Keflavík sigraði Þór Akureyri, 97-77, í 21. umferð Dominos deildar karla. Keflavík tryggði með sigrinum sæti sitt í úrslitakeppninni, eru eftir leikinn í 5.-6. sæti deildarinnar á meðan að Þór er í 7.-9. sæti deildarinnar.

 

 

Kjarninn

Leikurinn í dag var einstefna frá fyrstu mínútu. Keflavík skoraði 7 fyrstu stig leiksins og leit aldrei til baka. Voru 15 stigum yfir eftir 1. leikhluta 28-13 og höfðu aukið við forystuna fyrir lok fyrr hálfleiksins, 57-38. Atkvæðamestir í fyrri hálfleik leiksins voru, fyrir heimamenn, Amin Stevens með 24 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar á meðan að fyrir gestina var það George Beamon sem dróg vagninn með 15 stigum og 5 fráköstum.

 

Seinni hálfleikurinn var jafn óspennandi og sá fyrri. Ógnarsterkir Keflvíkingar voru áfram með bæði tögl og haldir. Bæta enn við forystu sína undir lok 3. leikhlutans, 86-55. 4. leikhlutinn var svo bara formsatriði. Eftir aðeins tveggja mínútna leik fóru þjálfarar beggja liða að hleypa minni spámönnum á gólfið. Sem er vel fyrir þá, en kannski skýrasta merki þess hversu lítið spennandi lokamínúturnar voru.  Fór svo að lokum að Keflavík sigldi 20 stiga sigur í höfn 97-77.

 

Einn og Tveir

Tveggja manna teymi Keflavíkur, leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson og miðherjinn Amin Stevens voru ógnvænlegir í kvöld. Mikið verið talað og ritað um að mögulega sé á ferðinni besta teymi deildarinnar í þeim köppum og það var nákvæmlega það sem þeir sýndu í kvöld. Voru samanlagt með 59 stig, 15 fráköst, 14 stoðsendingar, 3 stolna bolta og 6 varin skot.

 

 

Þáttaskil

Eftirá að hyggja var þessi leikur í raun búinn um leið og dómarinn kastaði boltanum upp í byrjun leiks. Keflavík skorar fyrstu 7 stig leiksins og fyrir utan eilítið góðan kafla í 2. leikhluta, þar sem þeir komast 8 stigum frá heimamönnum, kemst Þór aldrei nær í leiknum. Eru undir í 39 mínútur og 57 sekúndur í 40 mínútna leik. Mest 26 stigum.

 

Atvikið

Undir lok 3. leikhlutans fékk þjálfari Keflavíkur, Friðrik Ingi Rúnarsson, dæmda á sig tæknivillu af Rögnvaldi Hreiðarsyni fyrir að segja orðin "Er þetta djók" (að er virtist af hliðarlínunni) Þrátt fyrir um 20 stiga forystu heimamanna á þessum tímapunkti er ekki ólíklegt að þá hafi einhverjir stuðningsmenn Keflavíkur verið sendir til undanúrslita Íslandsmótsins 2006 í huganum. Þegar að sami dómari dæmdi tæknivillu á leikstjórnanda liðsins, Arnar Freyr Jónsson, fyrir ekki ósvipaða setningu "Ertu ekki að grínast". 

 

Tölfræðin lýgur ekki

Flæði sóknarleiks Keflavíkur var til fyrirmyndar í kvöld. Gáfu 30 stoðsendingar á móti aðeins 19 hjá Þór.

 

Hetjan

Erfitt er að gera upp á milli Harðar og Amin sem einhverrar aðal hetju leiksins. Amin þó að skila meira í framlagi, heilum 42 punktum. Skoraði 33 stig, tók 8 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og varði 3 skot á þeim 30 mínútum sem hann spilaði.

 

 

Örlögin

Eftir leiki kvöldsins er það ljóst að örlög Njarðvíkur séu að einhverju leyti í höndum granna þeirra í Keflavík. Í síðasta leik Íslandsmótsins spila þeir við ÍR, sem er jafnt að stigum og Njarðvík. Verði það svo að Njarðvík vinni sinn síðasta leik gegn Þór frá Þorlákshöfn verða þeir að treysta á að Keflavík vinni sinn leik gegn ÍR til þess að eiga möguleika á að verða með í úrslitakeppninni þetta árið. Annars missa þeir af henni í fyrsta skipti síðan árið 1992.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Umfjöllun, viðtöl / Davíð Eldur

Myndir / Bára Dröfn

 

Viðtöl:

Friðrik Ingi (Keflavík)

Hörður Axel (Keflavík)

Þröstur Leó (Þór Akureyri)

Fréttir
- Auglýsing -