Keflavík lagði Fjölni í kvöld í 7. umferð Subway deildar kvenna, 72-91. Eftir leikinn er Keflavík eitt liða taplaust í efsta sæti deildarinnar á meðan að Fjölnir er í 5.-7. sætinu með tvo sigra í fyrstu sjö leikjunum.
Karfan spjallaði við Hörð Axel Vilhjálmsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í Dalhúsum.