Hörður Axel Vilhjálmsson landsliðsmaður og leikmaður Keflavíkur hefur samið við PBC Astana í Kasakstan um að leika þar á næsta tímabili. Hörður lék með Keflavík á síðasta tímabili fyrir utan stutt stopp í Belgíu og Ítalíu en hefur nú ákveðið að söðla aftur um og fara í atvinnumennskuna.
Hörður Axel sem er byrjunarliðsmaður í Íslenska landsliðinu hefur einnig leikið í Grikklandi, Þýskalandi og á fleiri stöðum. Hann undirbýr sig nú undir Eurobasket með landsliðinu áður en hann hefur að leika í Kasakstan. Hann var með 15,7 stig 6,8 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Keflavík og því ljóst að um mikla blóðtöku er að ræða fyrir félagið.
https://t.co/SkdUNuW3kX
"??????" ????????? ???????? ? ?????????? ??????? ???????? — ???????? ??????????????. pic.twitter.com/EU3koshCp5— BC Astana (@PBCAstana) July 5, 2017
H