spot_img
HomeFréttirHörður Axel íþróttamaður Keflavíkur

Hörður Axel íþróttamaður Keflavíkur

 
Hörður Axel Vilhjálmsson var kjörinn íþróttamaður Keflavíkur fyrir árið 2010 á þriðjudagskvöld en þetta er annað árið í röð sem að Hörður Axel hlýtur þessa viðurkenningu. Hörður hefur farið mikinn með Keflavík síðustu tímabil og er yfirstandandi tímabil engin undantekning.
Í umsögn um Hörð Axel segir:
Hörður Axel hefur tekið miklum breytingum frá því að hann lék fyrst með Keflavík. Hann er fyrirmynd ungu kynslóðarinnar, utan vallar sem innan. Hann var lykilleikmaður Keflavíkurliðsins á síðasta tímabili og var liðið hársbreidd frá Íslandsmeistaratitli. Oddaleikur í úrslitaeinvíginu var háður í Keflavík, en hann tapaðist eins og frægt er orðið.
Hörður Axel Leggur mikið á sig til að bæta sig sem leikmaður og stundar morgunæfingar af fullum krafti, oft eins síns liðs. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki halað inn titlum á leiktíðinni, er Hörður Axel verðugur handhafi þessarar tilnefningar. Hann var valinn í Stjörnulið KKÍ fyrir hönd landsbyggðarinnar á dögunum í netkosningu. Það er enn ein vottunin á því að strákurinn hefur stimplað sig inn sem einn af sterkustu leikmönnum Íslands í körfuknattleik.
Hörður Axel hefur sýnt mikinn vilja í að ná langt og á að baki sem atvinnumaður þrátt fyrir ungan aldur. Hann á einnig að baki 16 A landsliðsleiki fyrir Íslandshönd á árunum 2007-9 og mun eflaust vera framtíðar landsliðsmaður Íslands en landsliðið var ekki starfandi árið 2010 vegna skorts á fjármunum.
 
Fréttir
- Auglýsing -