HomeFréttirHörður Axel: Ekki annað tekið í mál en að fara upp í...

Hörður Axel: Ekki annað tekið í mál en að fara upp í Bundesliguna

 
,,Liðið er mjög vel skipað með tvo menn í hverri stöðu þannig að það er svakaleg samkeppni innan liðsins. Það er ekki tekið annað í mál hérna en að fara upp í Bundesliguna og metnaðurinn er eftir því,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson þegar Karfan.is náði tali af honum fyrr í dag. Hörður er á toppi þýsku Pro A deildarinnar með Mitteldeutcher BC eftir nauman 72-74 útisigur um helgina.
,,Við og Dusseldorf eigum að vera með sterkustu liðin en núna eru allir að vinna alla svo þetta fer svolítið skringilega af stað,“ sagði Hörður sem er toppnum með tveimur öðrum liðum og annað þeirra er Crailsheim Merlins, gamla liðið hans Jóhanns Árna Ólafssonar leikmanns Grindavíkur.
 
,,Ég hef átt bæði góða og slæma leiki hér í byrjun tímabils. Ég geri alltaf miklar kröfur á sjálfan mig og stundum eru þær kannski óraunhæfar, maður er líka í töluvert breyttu hlutverki heldur en maður hefur átt að venjast,“ sagði Hörður sem hóf leiktíðina á því að koma inn af bekknum.
 
,,Alla jafna spila menn bara í kringum 20 mínútur í þessu liði en ég var vanur að spila yfir 30 mínútur með Keflavík þannig að það voru viss viðbrigði,“ sagði Hörður sem leikur stöðu leikstjórnanda í Þýskalandi rétt eins og hann gerði hér heima.
 
,,Ég hef samt visst frelsi sóknarlega eins og hefur verið hjá mér síðustu 2-3 ár, fæ fullt af boltahindrunum sem ég fæ að vinna úr og reyni bara að taka bestu ákvörðunina hverju sinni.“
 
Næsti leikur Mittledeutcher BC er laugardaginn 5. nóvember á heimavelli gegn Cuxhaven BasCats.
 
Fréttir
- Auglýsing -